„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2008/Aflaklóin“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 1: Lína 1:
'''Aflaklóin'''

'''Aflaklóin'''

[[Mynd:Sigurjón Óskarsson Sdbl. 2008.jpg|vinstri|thumb|234x234dp|Sigurjón Óskarsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Þórunni Sveinsdóttur VE. Margfaldur aflakóngur ]]
[[Mynd:Sigurjón Óskarsson Sdbl. 2008.jpg|vinstri|thumb|234x234dp|Sigurjón Óskarsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Þórunni Sveinsdóttur VE. Margfaldur aflakóngur ]]
Frá Eyjum hann alla tíð reri,
aflann úr hafinu dró.

Frá Eyjum hann alla tíð reri,
aflann úr hafinu dró.

Núverandi breyting frá og með 4. nóvember 2019 kl. 12:30

Aflaklóin

Sigurjón Óskarsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Þórunni Sveinsdóttur VE. Margfaldur aflakóngur

Frá Eyjum hann alla tíð reri,
aflann úr hafinu dró.
Á ufsann og ýsuna sneri,
afgreiddi þorskinn og hló.
Sjómaður var hann með sóma
og setti í dugnaði met.
Þess vegna læt ég hann ljóma
er líf hans í kvæðið ég set.

Á Þórunni Sigurjón sigldi.
Saltið í kinnarnar beit.
Fiskilán æ honum fylgdi
og farsæld á gæfunnar reit.
Vaskur í aðgerð oft óð hann.
Þá vel upp á ermar var brett.
Við stýrið í brúnni svo stóð hann
er stefnan til Eyja var sett.

Lýður Ægisson höfundur ljóðsins. Hann hefur líka samið lag við ljóðið

Enn eru sagðar hér sögur
um sægarp sem kunni sitt fag.
Hann sigldi um annes og ögur.
Við öldurnar fór hann í slag.
Frá Eyjum hann alla tíð reri,
aflann úr hafinu dró.
Á ufsann og ýsuna sneri,
Afgreiddi þorskinn og hló.

Lýður Ægisson