Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2000/Sjómannadagurinn 1999

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2016 kl. 16:59 eftir StefánBjörn (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2016 kl. 16:59 eftir StefánBjörn (spjall | framlög) (Ný síða: <center><big><big>'''Sjómannadagurinn 1999'''</big></big></center><br> Sjómannadagurinn 1999, var svolítið óhefðbundnari en menn eiga að venjast.<br> Sjómannadagsráð hafði...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Sjómannadagurinn 1999


Sjómannadagurinn 1999, var svolítið óhefðbundnari en menn eiga að venjast.
Sjómannadagsráð hafði samstarf við útvarpsstöðina Bylgjuna um dagskrá laugardagsins, og riðlaðist nokkuð hefðbundin dagskrá þann dag. Kappróðurinn hófst um hádegi og skemmtun á Stakkó upp úr kl. 1300 með Bylgjuhraðlestina og Hemma Gunn í fararbroddi. Var þar margt til gamans gert í ágætu veðri.
Kraftajötnar tókust á og buðu hraustum Eyjapeyjum í sjómann. Í þeirri rimmu sigraði Sveinn Mattíassson eftir harða keppni við bróður sinn Björn. Fyrir bömin var ýmislegt gaman í boði, alls konar leiktæki og landsfrægir skemmtikraftar héldu uppi ágætri dagskrá lungann úr deginum. Fór dagskráin á Stakkó hið besta ffam og kann Sjómannadagsráð þeim sem að henni komu hinar bestu þakkir. Ekki má gleyma því að á föstudeginum fór fram knattspyrnukeppni á milli áhafna og mættu sex áhafnir til leiks, Knattspyrnan er alltaf að verða vinsælli keppnisgrein á Sjómannadegi og er það vel, hvað er skemmtilegra en að horfa á búttaða kokka og olíusmitaða vélstjóra sparka bolta með kallinn argandi á hliðarlínunni? Eftir hörkukeppni og nokkra vel meinta pústra, þar sem margur hásetinn og netamaðurinn fór á kostum stóð áhöfnin á Valdimar Sveinssyni uppi sem sigurvegari en einhverjir vildu nú meina að Steindór hefði boðið nokkrum atvinnumönnum pláss, túrinn fyrir sjómannadag!
Í kappróðrinum á laugardeginum var frekar lítil þátttaka, aðeins ein áhöfn mætti til leiks, áhöfnin á Drangavík sem að sjálfsögðu sigraði í sínum riðli á tímanum 2 mín. 18 sek. Félögin sendu sveitir og Verðandimenn unnu á timanum 2 mín. 8 sek., Vélstjórafélagið varð í öðru sæti á 2 mín. 19 sek., og Jötunsmenn ráku lestina á 2 mín. 21 sek. Frá Þeir voru heiðradir á sjómannadag, f.v.: Gísli Grímsson, Jóhann Björgvinsson, Guðmundur I. Guðmundsson. Pétur Arnmarsson, Sigmund Jóhannsson, Friðrik Vigfússon, Guðmundur Guðlaugsson. Stakkó áfram þó að nautgriparæktendur hér í bæ renni til þess hýru auga)
Lúðrasveitin hóf dagskrána að venju með nokkrum Eyjalögum. Aldnar kempur voru heiðraðar, frá Jötni Jóhann Björgvinsson, frá Verðandi Guðmundur I. Guðmundsson, frá Vélstjórafélaginu Gíslí Grímsson, Pétur Arnmarsson fékk viðurkenningu fyrir að bjarga Vigfúsi Guðlaugssyni úr sjávarháska. Sigmund Jóhannsson var heiðraður af Sjómannadagsráði fyrir ötult og ósérhlífið starf í þágu öryggismála sjómanna. Friðrik Vigfússon hlaut Verðandiúrið fyrir bestu einkunn á skipstjórnarbraut Framhaldsskólans og Guðmundur Guðlaugsson skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur fékk verðlaun Siglingastofnunar fyrir bestu umgengni um öryggisbúnað í skipum.
Ræðumaður dagsins var Jón Bondó Pálsson og var gerður góður rómur að ræðu hans.
Samkórinn söng nokkur Iög og fleíri skemmtikraftar tróðu upp. Að lokum þandi kempan Örvar Kristjánsson dragspilið og endaði dagskrána þetta árið.
Með virðingu og þökk til þeirra fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg til að dagurinn okkar yrði að veruleika.
F.h. Sjómannadagsráðs, Valmundur Valmundsson, formaður