„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1989/Ljóð af bryggjunum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 2: Lína 2:
'''Ljóð af bryggjunum'''
'''Ljóð af bryggjunum'''

Snorra Jónsson, Gámavin, þarf ekki að kynna fyrir lesendum þessa blaðs. Snorri er Siglfirðingur, rafvirki að menn en er líklega kunnastur í Eyjum fyrir gámalöndun og kveðskap. Hér birtum við nokkrar af hugrenningum hans í bundnu máli.
[[Snorri Jónsson|Snorra Jónsson]], Gámavin, þarf ekki að kynna fyrir lesendum þessa blaðs. Snorri er Siglfirðingur, rafvirki að menn en er líklega kunnastur í Eyjum fyrir gámalöndun og kveðskap. Hér birtum við nokkrar af hugrenningum hans í bundnu máli.

'''STOLNAR STUNDIR'''

'''STOLNAR STUNDIR'''

Hvað er atvinnuþræll sem að öðrum er háöur

Hvað er atvinnuþræll sem að öðrum er háður

í alvöru að yrkja ljóð?

í alvöru að yrkja ljóð?

Það er álíka vitlaust og útgerðarmaður

Það er álíka vitlaust og útgerðarmaður

eltist við hrossastóð.

eltist við hrossastóð.

Því eí' maður yrkir á daginn

Því ef maður yrkir á daginn

er einhver sem borgar kaup

er einhver sem borgar kaup

og enginn vill greiðslu inna fyrir

og enginn vill greiðslu inna fyrir

eintóma dagdrauma og raup.

eintóma dagdrauma og raup.

En ef' að það skeður um nætur

En ef að það skeður um nætur

er ónýt sú hvíldarstund.

er ónýt sú hvíldarstund.

Það er erfitt með Iðunni gyðju

Það er erfitt með Iðunni gyðju

Lína 26: Lína 26:
En bátarnir liggja bundnir við kantinn,

En bátarnir liggja bundnir við kantinn,

þeir bylta sér óvært og rífa í bönd.

þeir bylta sér óvært og rífa í bönd.

Þeir ,,Gæðingar hafsins" geta vart beðið

Þeir „Gæðingar hafsins“ geta vart beðið

gnauðandi vinsveipar fari um lönd.

gnauðandi vindsveipar fari um lönd.

'''TIL VINAR MÍNS'''

'''TIL VINAR MÍNS'''

Núverandi breyting frá og með 14. júní 2019 kl. 14:07

Snorri Jónsson

Ljóð af bryggjunum

Snorra Jónsson, Gámavin, þarf ekki að kynna fyrir lesendum þessa blaðs. Snorri er Siglfirðingur, rafvirki að menn en er líklega kunnastur í Eyjum fyrir gámalöndun og kveðskap. Hér birtum við nokkrar af hugrenningum hans í bundnu máli.

STOLNAR STUNDIR
Hvað er atvinnuþræll sem að öðrum er háður
í alvöru að yrkja ljóð?
Það er álíka vitlaust og útgerðarmaður
eltist við hrossastóð.
Því ef maður yrkir á daginn
er einhver sem borgar kaup
og enginn vill greiðslu inna fyrir
eintóma dagdrauma og raup.
En ef að það skeður um nætur
er ónýt sú hvíldarstund.
Það er erfitt með Iðunni gyðju
að eiga sér ástarfund.

LANDLEGA
Það brakar í tógum og bryggjurnar skjálfa
og brimsogið myndar rastir og straum.
Geislabrot dansa á gáruðum fleti
sem gæðir þá lífi svo minnir á draum.

En bátarnir liggja bundnir við kantinn,
þeir bylta sér óvært og rífa í bönd.
Þeir „Gæðingar hafsins“ geta vart beðið
gnauðandi vindsveipar fari um lönd.

TIL VINAR MÍNS
Mig langar að yrkja þér undurfallegt ljóð
um allt það fagra og góða sem lífið kann að bjóða
en úr þessu verður bara ískalt spunahljóð
Því efnishyggjusnældan er þreytt í von um gróða.

Þannig er því varið og þess vegna það er
að þreyttir menn þeir eygja ei skóginn fyrir trjánum,
Þeir vaða bara áfram í villu þess sem fer
vinalaus til fundar þess er fellir þá með ljánum.