Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Fylluljóð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. mars 2017 kl. 13:52 eftir Halla1 (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. mars 2017 kl. 13:52 eftir Halla1 (spjall | framlög) (Ný síða: Fylluljóð eftir Gylfa Gylfi sá er ljóðið kvað var Guðni Eyjólfs¬son. kyndari í Gasstöðinni í Reykjavík. Hann var einn hinn mikilvirkasti og vinsælasti í hópi gamanv...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Fylluljóð eftir Gylfa Gylfi sá er ljóðið kvað var Guðni Eyjólfs¬son. kyndari í Gasstöðinni í Reykjavík. Hann var einn hinn mikilvirkasti og vinsælasti í hópi gamanvísnaskálda á þessum árum. þriðja áratugnum. Lag: Kvaservals Á sumrin er gaman að ganga sjer um göturnar eftir að rökkva fer. ef ,.Fylla" er liggjandi úti' í ál, og ekki' er á varðbergi nokkur sál. Gæti jeg krækt í danskan dáta, sem dálítið borðalagður er, þá mundu þær Rúna og Ranka gráta og rauðeygðar stara· á eftir mjer. Hún Ólafía' er að vara· oss við að vingast við pilta' að dönskum sið; það dragi á eftir sjer dilka smá, er dálítill tími' er liðinn frá. Gæti jeg o.s.frv. Já. sú getur ritað oss ráðin fín með reynsluna' og gráleitu hárin sín. því hún hefur aldrei þá sælu sjeð að sitja í faðmlögum dáta með. Gæti jeg o.s.frv. En nú skaljeg segja' ykkur sögu' af mjer; jeg sá það eitt kvöld, hvar hann Jensen fer; þá kalla jeg í hann að koma þar. ,,Ó, Kæreste", segir hann, .Jiva' beha'r". Gæti jeg o.s.frv. Eg varð þá dálítið undirleit - almættið sjálft það á hæðum veit-, er gengum við þarna hlið við hlið, og hann var að spjalla - um lágnættið. Gæti jeg o.s.frv. Svo kysti' hann mig ellefu kossa þar. sem kvöldskugginn mestur og afdrep var. og sagði: .. Du er so söd og fin. södeste, elskede Pigen rnin". Gæti jeg o.s.frv. En þá heyrðist blástur við bryggjusporð; mjer brá, svo því lýsa' ekki nokkur orð, því bátskömmin litla beið nú þar. og bjáninn hann Jensen minn þotinn var. Gæti jeg o.s.frv. Jeg sá þá, hvað herstjórnin hláleg er að heimta hann Jensen minn strax af rnjer, fyrst átti jeg kost á að eignast mann, svo inndælan, sætan og „dannaðan ... Gæti jeg o.s.frv. Seinna jeg ein út á Granda gekk. Ó, guð, hvað jeg ákafan hjartslátt tjekk, því Jensen og Sigga sátu þar í sömu laut og jeg forðum var. Gæti jeg krækt í danskan dáta, sem dálítið borðalagður er, þá mundu þær Rúna og Ranka gráta og rauðeygðar stara' á eftir mjer. -Gylfi. 47