Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985/ Elsta skipi flotans sökkt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. apríl 2017 kl. 14:04 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. apríl 2017 kl. 14:04 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: Elsta skipi flotans sökkt Það fækkaði um einn í bátaflota Vest¬manneyinga 18. nóv. s.l. þegar elsta skipi flotans var sökkt í skipakirkjugarði norð¬vestur af Eiðinu í...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Elsta skipi flotans sökkt Það fækkaði um einn í bátaflota Vest¬manneyinga 18. nóv. s.l. þegar elsta skipi flotans var sökkt í skipakirkjugarði norð¬vestur af Eiðinu í Eyjum. Haförn VE 23 hafði verið dæmdur í úreldingu og þetta 6 7 ára gamla happa- og gæfuskip fékk virðulega „útför". Af þiljum aflaskipsins Þórunnar Sveinsdóttur YE. sem hafði hjálpað Haf¬erninum síðustu ferðina út úr höfninni. fylgdust eigendur bátsins, aðstandendur þeirra og vinafólk, með söknuði og trega með því er skipið smám saman seig í sjó og hvarf loks alveg undir lognkyrrt yfirborðið. Langri og farsælli útgerðarsögu Hafarnarins var lokið. Haförn VE 23 var smíðaður í Fredriks¬sund í Danmörku árið 1917 og var 36 brúttó- lestir að stærð. Haförninn var elsta skip Eyjaflotans og jafnframt næstelsta skip íslenska fiskiskipaflotans skv. nýjustu skipaskrá. Skipið var keypt hingað til Eyja frá Danmörku árið 1940 af Pétri Andersen útgerðarmanni, sem kallaður var í daglegu tali Eyjabúa Danski-Pétur. Pétur átti bátinn ásamt sonum sínum og hlaut báturinn nafnið Meta VE. Þann 26. október 1959 keyptu svo bátinn bræðurnir Ingólfur og Sveinn Matthíassynir og gerðu þeir bátinn út allt fram til loka síðustu vetrarvertíðar að þeir ákváðu að hætta útgerð. Þeir bræður höfðu alla tíð róið sjálfir á bátnum. Ingólfur sem skipstjóri og Sveinn sem vélstjóri. Ingólfur Matthíasson sagði í samtali að sér þætti mikil eftirsjá í þessum bát. .Þetta hefur verið mikil happafleyta og öll þessi 25 ár sem við bræður höfum gert hann út hafa engin slys eða óhöpp hent bátinn né áhöfn hans ... Aðspurður um það, hvernig honum hefði verið innanbrjósts þegar hann horfði á eftir bátnum í hafið eftjr þessi löngu samskipti. svaraði Ingólfur: .,Eg fylltist miklum söknuði og eftirsjá. Þó get ég varla verið annað en ánægður með að báturinn fékk þessi endalok en ekki einhver önnur óvirðulegri eftir 6 7 ára þjónustu og farsælt 25 ára samstarf sem hefur reynst að öllu leyti vel og skilað góðum afla og afkomu. Þetta var afbragðsbátur og alla tíð vel búinn tækjum. Ég hefði óhræddur treyst bátnum til að þjóna okkur í 20 ár til viðbótar þeim 6 7 sem báturinn hefur að baki, en eftir 54 ár til sjós fannst mér tímabært að hætta sjósókn og fara að gera eitthvað annað. Við bræður erum orðnir fullorðnir og tókum 1111- þá ákvörðun að hætta útgerð." ...._ Ingólfur Matthíasson starfar nú sem hafnarvörður við Vestmannaeyjahöfn og því enn starfandi við lífæð byggðarlagsins þó að hann sé hættur að færa fisk að landi. ,.Ég hefi hoppað úr bátnum upp á bryggjuna, .. sagði Ingólfur Matthíasson skipstjóri að lokum - fengsæll og farsæll formaður í 25 ár. nú kominn í land eftir rúmlega hálfrar aldar sjósókn. -hkj. SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEY JA