Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1970/ Minning látinna 1970

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. apríl 2019 kl. 14:27 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. apríl 2019 kl. 14:27 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: Sverrir Þór Jónsson Minning látinna Til moldar oss vígði bið mikla vald, hvert mannslíf, sem jörðin elur, Sem hafsjór, er ris nieð fald við fald þau falla, en Gu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sverrir Þór Jónsson

Minning látinna



Til moldar oss vígði bið mikla vald, hvert mannslíf, sem jörðin elur, Sem hafsjór, er ris nieð fald við fald þau falla, en Guð þau telur, þvi heiðloftið sjálft er huliðstjald, sem bceðanna dýrð oss felur. Einar Eenediktsson

A sjómannadegi senda sjúmenn og allir Vest-mannaeyingar þeim, sem tim sárt eiga að binda vegna slysa á sjó og landi síðastliðið sjómanna-dagsár innilegar sam/íðarkveðj/ir. A mið/im sunnanlands urð/i ekki sjóslys á lið-inni vertíð. Fyrir Vestfjörðum fórst vélbáturimi Scefari hinn 10. janúar og með honuni 6 korn-ungir menn. Hinn 18. jan/íar varð hörm/degt slys á legnnni á Stokkseyri. Þrír formenn fórust, þegar litlum árabáti hvolfdi, er þeir vorti að lagfœra innsiglingarmerki. Hér í bai hafa á liðn/i ári látizt margir sjó-menn, sem settu st'ip sinn á bceinn og höfðn lagt sinn góða skerf til uppbyggingar byggðarlags-ins. Sendum við aðstandend/tm hl/ittekningar-ki'eðj/tr. Birtum við hér mynd og sttitt ceviágrip þess-ara sjómanna /ír Vestmannaeyjum. Hefur Eyj-ólfur Gíslason, fyrr/im skipstjóri, séð að mest/i um þennan þátt blaðsins. Ritstj. f. 5. júlí 1948 - d. 11. maí 1969

HANN var fæddur í Vestmannaeyjum 5. júlí 1948, sonur hjónanna Stefaníu Stefánsdóttur og Jóns Þórðarsonar Boðaslóð 22 hér í bæ. Sverrir ólst upp í glöðum systkinahópi og var næstelztur 6 systkina. Hann stundaði nám í verknámsdeild Gagnfræðaskólans hér. Þessi myndarlegi piltur er mér minnisstæður, og sýndi hann mikinn áhuga á þeim námsgreinum, sem að sjómennsku lúta, siglingafræði og verklegri sjóvinnu. Skömmu eftir að Sverrir lauk Gagn-fræðaprófi fór hann í úrvalsskiprúm á m/b Gjafar og varð fljótlega dugnaðarsjómaður. Sverrir var hneigður fyrir vélar og hafði lært nokkuð í bifvélavirkjun. Um hann ritar Sigurgeir Kristjánsson: „Sverr-ir var nágranni minn, og hlaut ég að fylgjast með honum á þroskaskeiðinu, og það leyndi sér ekki, að hér fór mannsefni. Hann var orðinn hár vexti og rammur að afli eins og hann átti kyn cil. Lundin var ör og viðkvæm og greinilegt að hjartað var gott, sem undir sló. Hann var reglu-samur, verklaginn og vinnusamur, rausnarlegur

og hjálpsamur við systkini sín og foreldra. Það var bjart í kringum Sverri, hvar sem hann fór, og mátti vænta nokkurra átaka af hans hálfu, er hann kæmist á manndómsár." Sverrir Þór varð fyrir slysi á bifhjóli og and-aðist af völdum þess á sjúkrahúsi í Reykjavík 11. maí 1969. G. Á. E.


Guðmundur Guðjónsson, Prestbúsum f. 28. janúar 1911 - d. 18. des. 1969

GUÐMUNDUR var fæddur að Oddstöðum 28. janúar 1911 og ólst þar upp í glöðum og stór-um systkinahópi. Eins og þá var títt, varð Guðmundur að fara að hjálpa til og vandist ungur þeim avinnuhátt-um, sem hér höfðu tíðkazt um aldaraðir. Hann hjálpaði til í búi föður síns, eftir því sem hon-um óx fiskur um hiygg, og sex ára gamall fór hann fyrst með föður síniun í Elliðaey og þang-að lá leiðin næstum á hverju sumri eftir það, að fáum undanteknum, er hann var við síld-veiðar fyrir Norðurlandi. Varð Guðmundur lipur og góður veiðimaður. Ungur byrjaði Guðmundur sjómennsku og var í góðum skiprúmum, með miklum fiski-mönnum, svo sem Arna Þórarinssyni á es. Ven-usi, Guðjónj Tómassyni á mb. Fylki, Jóni Magn-ússyni á mb. Stíganda og frænda sínum, Guð-mundi Vigfússyni, á mb. Voninni. Um 1940 kennir Guðmundur vanheilsu og hættir sjómennsku, en ræðst að þurrkhúsinu, þar sem hann vann fyrst sem vélstjóri, en tók við verkstjórninni, eftir að Herjólfur bróðir hans féll frá, árið 1951. Guðmundur var hér yfirfiskimatsmaður í 3 ár, en varð að segja því starfi lausu árið 1968 sök-iim heilsubrests. Hann varð bráðkvaddur 18. des. 1969. Guðmundur var sérlega skemmtilegur og


léttlyndur félagi á sjó og landi, söngvinn og hrókur alls fagnaðar í frænda- og vinahópi. Hann var kvæntur Jórunni Guðjónsdóttur frá Kirkjubæ, og eignuðust þau 5 börn. E. G.


Jón Jónasson frá Múla, Hásteinsvegi 33 f. 8. ágúst 1895 - d. 23. apríl 1970

JÓN VAR fæddur að Berjanesi undir Eyjafjöll-um 8. ágúst 1895. Upp úr aldamórunum 1900 flutrist hann hingað til Eyja með foreldrum sínum, sem byggðu stuttu síðar húsið Múla, sem Jón var kenndur við til æviloka. Ungur byrjaði Jón að vinna við útgerð föður síns, sem átti sjöttapart í mb. Hrólfi VE 125. Fyrst sem beitudrengur, síðar háseti og fljótlega vélamaður. Það starf hafði hann á ýmsum bát-um, þar til hann hætti á sjónum um 1930. Jón tók hið minna fiskiskipstjórapróf árið 1922, með fyrstu einkunn. Árið 1925 eignaðist Jón fjórðapart í 12 tonna


bát, sem hét Garðar VE 243, en var alltaf kall-aður Múla-Garðar, til aðgreiningar frá sam-nefndum báti. í Múla-Garðari átti Jón í 6 ár, eða þar til báturinn strandaði á Þykkvabæjar-fjöru. Eftir að Jcn hætti sjómennsku vann hann við fiskaðgerð á vetrum, en saltfiskmati vor og sum-ar. Mörg ár var Jón fastur starfsmaður hjá Vinnslustöðinni og þar vann hann fullan vinnu-dag sinn síðasta ævidag. A sínum yngri árum var Jón góður íþrótta-maður, ágætur glímu- og knatnpyrnumaður, og í scndnámi var hann þrjú sumir, en þá var kennt sund í Botninum, eða í Höfninni, eins og nú er sagt. Hann var einn af elztu félögum íþ: óttafélagsins Þórs. Jón var kvæntur Onnu Einarsdóttur, og eign-uðust þau fjóra syni, e'nn þeirra dó í bernsku; eru tveir þeirra, Jónas cg Einar vel þekktir bíl-stjórar í okkar bæ, en Kal er skipstjóri á ís-Ienzku flutningaskipi. Jón frá Múla var traustur og vandaður maður til orða og verka. Hann andaðist 23. apríl 1970. E. G. Ölafj/r G. V estmann, Boðaslóð 3 t. 25. des. 1906 - d. 15. apríl 1970

HANN var fæddur í Vestmannaeyjum 25. des. 1906 og ólst hér upp í Háagarði til 12 ára ald-t:rs. Ólafur flyzt þá að Vallnatúni undir Eyja-íjöllum og er þar um 10 ár, en flyzt þá afmr til Eyja og byrjar að róa á mb Happasæl, með Eyj-clfi í Lauga dal. Síðan ræðst Ólafur á mb ísleif Ve 63 til Arsæls á Fögrubrekku. A mb. ísleifi er Ólafur meira en helming sinnar sjómannsævi, eða rúm 20 ár, með sjö formönnum, lengst með Andrési Einarssyni, níu vertíðir. Ólafur var einnig lengi með E'nari Runólfssyni, fyrst á Isleifi og seinna á mb. Hilmi (nú Faxi) og var á þeim bát nokkur ár. Ólafur var síðan á ýmsum bátum, ýmist há-seti eða matsveinn, eftir að hætt var við bita-kassana og farið að matbúa á sjónum. Nokkur sumur var Ólafur kokkur á Eyjabátum, sem stunduðu síldveiðar fyrir Norðurlandi. Þá má geta þess, að Ólafur var fyrsti maður, sem varð áhorfandi að neðansjávar eldgosinu, er skapaði Surtsey. Var hann þá háseti á mb. Isleifi II Ve 36 og stóð baujuvaktina cg andæfði við

endabaujuna skammt þar frá, sem gosið kom upp, og vildu því margir láta eyna heita Ólafs-ey, en aðrir Kokksey, til minningar um þenn-an atburð. Ólafur hætti sjómennsku haustið 1967. A síð-ustu sjómannsárum sínum var hann heiðraður nokkra sjómannadaga sem elzti starfandi há:eti Eyjaflotans. Ólafur vann alla ævi hörðum höndum. Hann var þrekmikill dugniðarmaður, á meðan heilsan leyfði, en síðustu árin gekk hann ekki heill til skógar. Ólafur va-ð bráðkvaddur á heimili sínu, að morgni 15. apríl s. 1., er hann var að fara til vinnu sinnar. Hann var kvæntur Þcrbjörgu Guðmundsdótt-ur, og eignuðust þau 6 börn, þar af 4 syni, sem allir eru hér dugnaðarsjómenn, en dóttur Þor-bjargar gekk Olafur í föðurstað. E. G.


Jón Gíslason, Armóti f. 4. jan. 1888 - d. 20. febrúar L970

JÓN var fæddur að Uppsölum í Vestmannaeyj-um 4. janúar 1888. Jón var einn af elztu útgerðarmönnum Eyj-anna, er hann andaðist. Hann mun fyrst hafa eignazt pait í mótorbátnum Höfrungi VE 138 árið 1910 og var bátseigandi allt fram til ársins 1965. Jón vann ætíð við útgerð sína, fyrstu árin sem beitumaður, síðar við fiskaðgerð, og síðttsai árin vann hann að ve ðarfæmnum eingöngu, að-allega þorskanetum. Það var sama hvaða störf Jón vann, snyrtileg.i umgengni hans var við brugðið. Jón var nokkur ár pakkhúsmaður hjá kaup-félaginti Fram og vann þau störf, sem öll önn-ur, af trúmennsku og skyldurækni.


Jón Gíslason átti hér langan starfsdag, því að yfir áttiætt vann hann fullan vinnudag. Hann var einn úr hópi þeirra manna, sem lögðu undir-stöðuna að uppbygg'ngu þessa bæjar. Slíkra manna er gott að minnast. Jón var kvæntur Þórunni Markiisdóttur, en missti hana eftir stutta sambíið. Þau eignuðust tvo syni, Markiis og Þórarin, sem eru hér vel þekktir sómamenn. Jón lézt í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja eftir stutta legu 20. febniar 1970. E. G. Tryggvi Kristinsson, Nliðhúsum i. 21. marz 19.28 - d. 26. nóv. 1969

HANN var fæddur í Hólmgarði í Vestmanna-eyjum 21. marz 1928 og ólst þar upp hjá for-eldrum sínum og síðan á Miðhúsum, eftir að þau hjón keyptu það hús, og í föðarhúsum var hann alla sína ævi. Tryggvi fór ungur á sjóinn, og þar vann hann sitt ævistarf. Um tvitugsaldur fór Tryggvi á vél-stjóranámskeið hér, og upp frá því var hann oft-ast vélstjóri. Lengst var hann á mb. Freyju


Ve. 260. Þá var Tryggvi formaður í nokkur ár á mb. Báru Ve 85, sem hann átti ásamt bróður sínum og fleirum. Tryggvi var góður vélstjóri og sjómaður, eins og margir af hans ættmönn-um. Tryggvi drukknaði í Vestmannaeyjahöfn 26. nóv. 1969. um og uppeldisbróður, Þórarni Guðmundssyni á Jaðri. Um 1930 léc Jón smíða handa sér trillubát, sem hann nefndi Nóa (heitir nú Hlýri) og var formaður á honum. Arið 1936 byrjaði Jón for-mennsku á mb. Mýrdælingi og eftir það var hann með eftirtalda báta: Olgu, Gullfoss, Gunn-ar Hámundarson, Stakkárfoss, Óskar, Viggó, Hjálpara, Skuld, Leif, Gylfa og Vin. Hann var góður og aðgætinn formaður, en hætti sjó-menmku sökum vanheilsu 1955. Á yngri árum stundaði Jón lundaveiðar og lá þá við í úteyjum. Hann var mjög leikinn og lip-ur veiðimaður, eins og sumir bræðra hans og faðir þeirra, sem var hér á sinni tíð orðlagður lundaveiði- og fjallamaður. Eitt sumar, er Jón lá við í Álsey, veiddi hann á einum degi rúm-ar 8 kippur (800) í Landnorðurstaðnum, sem þótti þá afburða mikið og var umtalað. Jón var kvæntur Bergþóru Jóhannsdóttur, og eignuðust þau 4 börn. Jón í Mandal var góður drengur og sannur Vestmannaeyingur. - Hann andaðist að heimili sínu 6. júní 1969. E. G.


Jón í. Stefánsson, Mandal f. 12. maí 1904 - d. 6. júní 1969

JÓN VAR fæddur að Ási í Vestmannaeyjum, 12. maí 1904, og voru foreldrar hans, Stefán Gísla-son frá Hlíðarhúsi og kona hans, Sigríður Jóns-dóttir frá Mandal. Jón ólst upp hjá afa sínum og ömmu í Man-dal, og þar átti hann heima alla sína ævi. Hann fór ungur á sjóinn með Jóni, afa sínum, á vor-og sumarbátnum hans, sem hét Nói. Seytján ára gamall reri Jón með Gústav bróður sínum á mb. Gústav, sem faðir þeirra og afi áttu. Eftir það var hann nokkrar vertíðir með frænda sín-



Óskar Kárason, Sunnuhóli f. 9. ágúst 1905 - tl. 3. maí 1970

HANN var fæddur að Vestur-Holtum undir Eyjafjöllum 9. ágúst 1905, en fluttist 7 ára gamall til Eyja með foreldrum sínum. Óskar fór að róa með föður sínum íiðeins 13 ára gamall. Var það á árabát sumarið 1918 austur á Langanesi. Óskar missti föður sinn, er hann var um tví-tugsaldur. Tók hann þá að sér forystu heimilis-ins út á við og varð aðalstcð Þórunnar móður sinnar við að ala upp sinn stóra systkinahóp, en hann var elzair bræðra sinna. Árlð 1924 tók Óskar hið minna fiskiskip-stjórapióf og varð eftir það stýrimaður á stórum bátum, svo sem Höfrungi III Ve 138, sem móðir hans átti þriðjapart í, mb. Heimaey Ve 7 o. fl. bátum. Óskar stundaði einnig togarasjómennsku um tíma, en vertíðina 1929 varð hann formað-ur á mb. Ásdísi Ve 144, sem var tæp 14 tonn að stærð. Fórst honum formennskan vcl úr hendi, en hætti sjómennsku að aflokinni þeirri vertíð og hóf nám í múiaraiðn, sem hann varð meistari í. Hann varð byggingarfiilltrúi Vest-mannaeyjabæjar og gegndi því starfi full 30 ár. Á yngri árum stundaði Óskar lundaveiðar og lá við í Elliðaey, sem bújörð foreldra hans, Presthús, áttu nytjar í. Hann var ágætur veiði-maður og skemmtilegur félagi. óskar var góður hagyrðingur, orci hann tvennar formannavísur, um alla scarfandi Vesc-mannaeyjaformenn, og geymasc þar með báca-og mannanöfn þær veicíðir. Hann var kvæncur Onnu Jesdóttur, og eign-uðusc þau 3 börn. Óskar lézc að heimili sínu 3. maí 1970.

Kristinn Jónsson, Mosfelli f. 26. maí 1899 - d. B.júní 1969

HANN va; fæddur 26. maí 1899 á Guðnascöð-um í Landeyjum, en fluttisc ungur hingað til Eyja með íoreldrum sínum. Um fe.. ^ngaraldur byrjaði Kriscinn að beita á útvegi föOL: síns, á mb Blíðu Ve 119, sem faðir hans átti þá sjötta parc í. Innan við cví-

tugt byrjaði Kristinn að róa hér á vetrarvertíð-um á áraskipi. Var það á áttæringnum Örk, sem var þá nýsmíðuo, með færeysku lagi. Formaður á Örkinní var Krist'nn Ásrgei sson frá Litlabæ. Á Örk'.nni reri Kristinn þær þrjár verarvertíðir, sem^hún var gerð út til fiskiveiða. Eftir það va: Krist'nn á úrvegi föður síns, sem átti þá fimmtapart í mb Skógafossi Ve 236, og á þeim bát var hann fram yfir 1930, en síðan á ýmsum bátum, cftast beitumaður, en reri á netavertíðum. Stuttu eftir 1940 hætti Kristinn sjómennku og sneri sér að öðrum störfum. Hann var fjölhæfur og afkastam kill ve k-maður og féll sjaldan verk úr hendi, meðan heilsa leyfði. Síðustu æviárin bar hann út póst Vestmannaeyinga. Hann kvæntist Jónu Guð-laugsdóttur og áttu þau rvc börn. Kristinn andaðist í Sjúkrahiisi Vestmanna-eyja 13. júní 1969.


Matthías Finnbogason, Litluhólum f. 25. apríl 1882 - d. 9. júní 1969

ÞÓ AÐ Matthías Finnbogason væri hér ekki sjó-maður, kom hann svo mikið við sögu vélbát-anna á fyrstu árum þeirra hér í Eyjum, að mynd hans og fáorð minning má gjarnan geym-act í Sjómannadagsblaðinu. Á fy.stu árum þessarar aldar fluttist Matthías hingað til Eyja austan úr Mýrdal, þar sem hann var fæddur cg uppalinn. Marrhías stofnsetti hér fyrstur manna járn-smíðaverkstæði. Það var árið 1907, en veturinn áður hafði Matthías unnið í vélaverksmiðjunni Dan í Danmörku, til að kynna sér mótoivélar. Til að byrja með var Matthías með verkstæðið til húsa í gamla barnaskólanum (nú Dverga-steini við Heimagötu), en flutti það í kjallara


íbúðarhúss sín; að Jaðri, er hann hafði lokið smíði þess um áramótin 1908-09. Þau smíðaáhöld, sem Matthías varð að notast við, mundu nú þykja lélegur tækjakostur, en hann var listasmiður, hugvitssamur og handlag-inn og gat því oftast rert við þær mótcrbilanir, sem urðu hér á þeim árum. Þegar byrjað var á byggingu hafnargarðanna 1914, var reist smiðja í sambandi við þær f.am-kvæmdir. Var hún staðsett á Skaminum. Veitti Matthías smiðjunni forstöðu og vann öll árin að þeirri járnsmíði, sem þar þurfti til. Matthía; var hér mörg ár vélaeftirlitsmaður Skipaskoðunar rík'sim og Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja. A 50 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar síðast-liðið sumar, voru til sýnis, í iðnaðarmannadeild-inni, nokkrir smíðisgripi: Matthíasar. Þar á meðal líkan af skipsgufuvél, hin mesta völund-arsmíði, sem allir dáðuct að og bar handbragði hans fagurt vitni. Matthías var kvæntur Sigríði Þorsteinsdóttur frá Vilborgarstöðum, og eignuðust þau 8 börn. E. G.


Agt'tst Jónsson, Vttrmahlið f. 5. ágúst 1891 - d. 1. des. 1969

ÁGÚST var fæddur 5. ágúst 1891 í Vestur-Land-eyjum. Agúst kom hingað fyrst til vertíðarstarfa 1906 og reri þá vertíð á tíæringnum Hauki hjá Magnúsi á Landamótum. Eftir það stundaði Ágúst sjóinn hér á vetrar-vertíðum og til Vestmannaeyja fluttist hann al-kominn árið 1910. Agúst reri hér á ýmsum bát-um, svo sem Elliða og mb. Víkingi, hjá Gísla á Arnarhóli, hálfbróður sínum. Árið 1920 byrjaði Agúst formennsku á mb Siggu Ve 142, sem var 5,30 tonn að stærð með S hestafla Danvél. Keypci hann bátinn af Gísla J. Johnsen og gekk sérstaklega vel að fiska á Siggu litlu. Síðan tók Ágiist við formennsku á mb. Haffrií og var með hana í eina vertíð. Arið 1925 lét Agúst smíða ásamt öðrum nýj-an bát, Auði Ve, sem var rtim 15 tonn að stærð. Átti hann fjórða part í þeim báti, en var ekki formaður á Auði nema þá einu veitíð, 1926. Hætti Ágúst þá fcrmennsku og sjósókn að mestu og sneri sér að cðrum störfum, aðallega trésmíð-um, sem hann vann við til æviloka og hafði lært Lingur. Agúst var kvæntur Pálínu Eiríksdóttur, og eignuðu:t þau 9 börn. Agúst var vinsæll dugnaðarmaður. Hann and-aðist í Sjúk ahúsi Vestmannaeyja 1. des. 1969.


R/tnúlf/ir Jóhannsson, Hilmisgótu 7 f. 4. október 1898 - d. 4. ágúst 1969

RUNÓLFUR var fæddur á Gamla-Hrauni við Eyrarbakka 4. október 1898, og þar ólst hann upp. Runólfur byrjaði 15 ára gamall að róa á ára-skipi í Þorlákshöfn, hjá föður sínum, sem var þar formaður 39 vetrarvertíðir. Haustið 1919 kcm Runólfur fyrst til Eyja til að læra skipasmíði hjá frænda sínum, Magnúsi Jónssyni frá Gamla-Hrauni, sem þá var hér yfirsmiður við nýsmíði nokkurra báta. Fyrsti báturinn, sem Runólfur vann að smíði

á, var Faxi Ve 215, og á þeim báti reri hann sína fyrstu vertíð hér, með Guðmundi á Háeyri. Runólfur byrjaði formennsku árið 1927, á mb Skjaldbreið (nú mb Faxi), sem Gísli Magn-ússon hafði þá vertíð á leigu og gerði út á þorskanet. Síðan var Runólfur með eftirralda báta: Ing-ólf Ve 216, Geir goða Ve 10, Erling Ve 295 og Blika Ve 143; lengst með Ingólf, sjö vertíðir. Um 1940 hætti Runólfur að stunda sjó-mennsku sem aðalstarf og réðst þá yfirsmiður í Skipasmiðastöð Vestmannaeyja. Vann hann þar um 10 ár og smíðaði marga báta, sem þóttu þá mjög glæsileg skip að öllum frágangi. A þeim árum smíðaði hann sér lítinn trillu-bát, sem hann nefndi Svan, og á honum srund-aði hann sumarróðra og úteyjaferðir, er tími vannst til. Runólfur var mikill hagleiksmaður og smíð-aði mörg skipa- og bátalíkön, sem bera þess glöggt merki. Frá 1. jan. 1948 var Runólfur skipaður skipa-eftirlitsmaður fyrir Vestmannaeyjar og hafði það starf til dánardægurs. í því vandasama starfi ávann hann sér traust og virðingu, enda rækti hann starfið af festu, trúmennsku og verklegri reynslu sem skipasmiður og sjómaður. Runólfur lét slysavarnamál mjög til sín taka og sá t. d. um viðhald björgunarbátanna og skýla þeirra á Eiðinu og Skansinum í mörg ár. Bar það sem annað, er hann vann, snyrtimennsku hans vitni. Þá kom Runólfur mjög við sögu, er gúmmí-bátarnir voru teknir í notkun, bæði í afskiptum Verðanda af málinu, áður en fyrstu bátarnir komu, og er hann leysti vandann um geymslu gúmmíbáta um borð í skipum. Það var þá talið aðalvandamálið og það jafnvel torleyst að geyma bátana óskemmda. Runólfur leysti það með smíði trékistu, sem hann endurbætti svo síðar vel og hugvitsamlega. Runólfur var einn af stofnendum Verðanda og starfaði mikið í því félagi. Hann var ritari félagsins í 12 ár og sat nokkur F. F. S. í. þing af félagsins hálfu. Runólfur var gerður að heið-ursfélaga Verðanda árið 1953. Hann var kvæntur Kristínu Skaptadóttur, og eignuðust þau 5 börn. E. G.


Magmís Jakobsson, Skuld f. 16. sept. 1903 - d. 7. febrúar 1970

MAGNÚS var fædddr 26. september 1903 að Breiðuhlíð í Mýrdal, sem nú er eyðibýli. Mjög ungur fluttist Magnús með foreldrum sínum til Víkurþorps, og þar ólst hann upp, hjá móður sinni, því að 6 ára gamall missti hann föður sinn, sem drukknaði í lendingu í Vík, árið 1909. Ungur byrjaði Magnús að róa út frá Vík, þegar f iskur var genginn á grunnmið, og vertíð-ina 1921 var Magnús háseti á skipi, sem hlekkt-ist á í lendingu í Vík. Magnus bjargaðist, ásamt

fleirum, en meðal þeirra, sem fórust, voru rveir bræður hans, Sæmundur og Kári. Þannig voru fyrstu kynni Magnúsar af sjón-um, og þó varð hann honum ekki fráhverfur, því hann var sjómaður yfir 30 ár, þar af 25 ár hér í Eyjum. Magnús var vanafasrur og rrygglyndur maður, svo sérstætt var. Vertíðina 1928 réðst hann til Stefáns Björnssonar skipsrjóra og konu hans, Margrérar, í Skuld. Frá því ári ril dánardægurs átti hann sitt heimili í Skuld og var æríð kennd-ur við það hús. Þá var Magnús heldur ekki að skipta um skipsrúm, því að á mb. Skallagrími VE 231 réri hann samfellt frá ársbyrjun 1928 til ársloka 1952, fyrst háseti, fljótlega og í mörg ár véla-maður og síðusnt 10 árin formaðiu. Þegar Magnús hætti sjómennsku réðst hann á vélaverkstæði Þorsteins Steinssonar og hóf vél-smíðanám og aflaði sér meistararéttinda í þeirri iðn. Þar vann hann fram að dánardægri, sem bar að með slysi á vinnustað 7. febr. 1970. Magnús var góður drengur, sem öllum þórti gott að vera með á sjó og landi, fróður cg skemmtilegur og góður hagyrðingur.


Vigfús Sigurðsson, Bakkastig 3 f. 24. júlí 1893 - d. 25. febrúar 1970

HANN var fæddur á Seyðisfirði 24. júlí 1893 og flurri hingað til Eyja með foreldrum sínum og sysrkinum 14 ára gamall. Innan fermingaraldurs byrjaði Vigfús að róa með föður sínum á árabáti yfir sumartímann. Var róið með línu cg handfæri og veiðisvæðið innanfjarðar og út undir Skálanesbjarg. Verríðina 1914 byrjaði Vigfús að róa hér, á sexæringnum Gæfu, hjá Ólafi Ástgeirssyni og réri hjá honum 4 vertíðir. Þá réðst hann til


frænda síns, Árna Finnbogasonar á m/b Helgu VE 180 og var með Árna þar ril hann byrjaði formennsku með m/b Blíðu, sem var 6,35 tonn að stærð. Gekk Vigfúsi vel að fiska á Blíðu. Efrir þetta var Vigfús með efrirtalda báta: Gústav og Mars, en vertíðina 1925 fékk hann nýjan bát, sem var smíðaður í Noregi. Hann hét Gunnar Hámundarson og var 17 tonn að stærð. Átti Vigfús þriðjapart í bátnum og var formaður á honum 6 ár. Eftir það var hann eina vertíð formaður á m/b Snyg, sem var 26,55 tonn að stærð. Þá hætti hann á sjónum og vann að út-gerð báts síns og fleiri störfum. Nokkur ár var Vigfús verkstjóri hjá ísfélaginu, en síðustu ævi-árin var hann ráðsmaður á Sjúkrahúsi Vest-mannaeyja. Vigfús var einn í hópi þeirra Vesrmannaeyja-formanna, sem fyrstir fóru á bátum sínum til síldveiða með reknet við Norðurland. Vigfús var til orða og verka traustur og ábyggilegur maður. Hann var kvæntur Jónu Vilhjálmsdórtur og eignuðust þau tvær dæntr. Vigfús varð bráðkvaddur að heimili sínu 25. febrúar 1970. Valdimar Bjarnason frá Staðarhóli (. 17. marz 1894 - d. 23. feb. 1970

HANN var fæddur í Vatnsdal í Austur-Húna-vatmsýslu 17. marz 1894 og var þriðji maður frá Bólu-Hjálmari. Ungur gerðist Valdimar sjómaður á Austf jörð-um, og þar byrjaði hann sína formennsku með árabát. Valdimar kom til Vestmannaeyja 1914 og reri þá vertíð hjá Gísla Magnússyni á mb. Óskari, síðar varð hann háseti hjá Bernódusi Sigurðs-syni á mb. Má, og hefur Valdimar eflaust mikið lært af þeim miklu formönnum. Valdimar byrjaði formennsku vertíðina 1919 á mb. Braga VE 165, sem var 9 tonn að stærð. Varð hann strax áberandi fiskimaður. Næstu vertíð, 1920, er Valdimar með nýsmíðaðan bát, Tjald VE 225, sem var mældur tæp 12 tonn að stærð. Vertíðina 1921 er Valdimar formaður á nýj-um bát, Lagarfossi VE 234, sem var 12,54 tonn. Valdimar átti þriðjapart í bátnum og var for-

maður á honum 7 vertíðir. A Lagarfossi varð Valdimar fiskikóngur Eyjanna tvær vertíðir, 1925 og 1927. Vertíðina 1928 varð Valdimar formaður á ný-smíðuðum báti, sem Gísli J. Johnsen átti. Var það Heimaey VE 7, 29 tonn að stærð með 90 hestafla Tuxham vél, tveggja strokka. Þessi bát-ur var raflýstur og með fyrstu loftskeytatækjum, sem sett voru í íslenzkan fiskibát. Valdimar var með Heimaey til vertíðarlcka 1929, en flutti þá alfarinn til Reykjavíkur. Valdimar var hörkusjómaður. Hann andaðist á sjúkrahúsi í Reykjavík eftir stutta legu i febr. 1970. E. G.


Holberg Jónsson f. 17. nóv. 1913 - d. 16. jan. 1970

HANN var fæddur á Akranesi 17. nóv. 1913. Holberg fluttist með foreldrum sínum til Vestmannaeyja árið 1934. Fjórtán ára gamall byrjaði hann að róa með Jóni föður sínum, og eftir að þeir feðgar fluttu hingað til Eyja, var hann fyrstu árin háseti hjá honum. Jón, faðir hans, var hér mörg ár formaður á dragnótabátum og ágætur fiskimaður í það veiðarfæri. Um 1940 tók Holberg hið minna fiskiskip-stjórapróf og var formaður á eftirtöldum báaim á dragnótaveiðum: Þristi, Verði, Erni, Stakkár-fossi og Björgvin VE 271, sem hann átti þriðja-part í. Holberg var glöggur og góður fiskimaður í dragnót og var aldrei með annað veiðarfæri. Hann hætti sjómennsku 1952 og vann nokkur ár eftir það á netaverkstæði hér, en fluttist síð-an alfarinn til Reykjavíkur með fjölskyldu sína.


Hann var kvæntut Guðríði Magnúsdóttur, og eignuðust þau 3 börn. Holberg andaðist á Borgarspítalanum 16. janúar 1970.


Auðunn Oddsson frá Sólheimum f. 24. sepr. 1893 - d. 29. des. 1969

HAN N var fæddur á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 24. sept. 1893. Á:ið 1924 fluttist Auðunn búferlum til Eyja og réðst þá vertíð háseti á mb. Mínervu, sem var 19 tonn að stærð og þá einn af stærstu bát-um í höfn. Auðunn byrjaði fcrmennsku vertíðina 1927 á Enok VE 164, sem var 11,5 tonn að stærð. Eftir það var hann formaður á eftirtöldum bát-um: Síðuhalli, Nonna, Þrasa, Valdimar og Guð-rúnu. Á Síðuhalli fékk Auðunn á sig frægðarorð fyrir mikla sjómennsku. Hinn 12. febrúar 1929 gerði hér austan ofvið:i. Síðuhallur var þá á línuveiðum skammt vestur af Einidrang. Er þeir höfðu dregið um þriðja hluta af línunni, bilaði vélin og varð óganghæf. En komið var kvöld og ekkert rkip þeim til hjálpar sjáanlegt, en báturinn farinn að fá á sig áfóll í veðurofsanum. Lét Auðunn útbúa klýfirbómuna sem drifakkeri með því að binda á hana línustampa, sem þá voiu úr tiétunnum, og línubelgi. Var sleftógið síðan bundið í hanafót um bómuna og báturinn látinn drífa fyrir því, þar til björgunarskipið Þór fann bátinn út af Selvogi næsta dag. Talið var, að þessar aðgerð!r Auðuns hefðu orðið þeim 11 bjargar. Auðunn var kvæntur Steinunni Gestsdóttur, o§ eignuðust þau sex bö.h. Þau hjónin fluttu al-farin til Reykjavíkur árið 1944, en tveir synir þeirra, Bárður og Sigurjón, eru búsettir hér. Auðunn var mesti dugnaðar- og þrekmaður. Hann lézt að Hrafnistu 29. desember 1969.