Sigurður Jónsson yngri (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2017 kl. 15:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2017 kl. 15:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Jónsson verslunarmaður, útgerðarmaður, kaupmaður frá Háagarði fæddist 24. júlí 1898 í Fagradal í Mýrdal og lést 22. apríl 1962.
Foreldrar hans voru Jón Sverrisson bóndi, yfirfiskimatsmaður, f. 22. janúar 1871, d. 5. mars 1968, og kona hans Solveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 20. ágúst 1879, d. 21. apríl 1955.

Börn Solveigar og Jóns voru:
1. Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 24. júlí 1898, d. 22. apríl 1962.
2. Sverrir Magnús Jónsson sjómaður, f. 25. júní 1900, drukknaði af Minervu 24. janúar 1927.
3. Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri, f. 11. júní 1901, d. 28. júlí 1959.
4. Einar Jónsson skipstjóri, f. 16. desmber 1902, drukknaði af Mínervu 24. janúar 1927.
5. Solveig Magnea Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. nóvember 1904, d. 10. desember 1984.
6. Sigurjón Jónsson skipstjóri, síðar verkamaður, f. 18. janúar 1906, d. 5. október 1979.
7. Lilja Jónsdóttir hárgreiðslukona, f. 5. maí 1907, d. 28. desember 2006.
8. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1908, d. 24. apríl 1993.
9. Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.
10. Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
11. Kjartan Jónsson lyfjafræðingur, f. 1. maí 1914, d. 5. júní 2004.
12. Svanhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 11. mars 2006.
13. Rannveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 23. apríl 2002.
14. Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður, gangavörður, f. 11. desember 1919 í Eyjum, d. 1. maí 2011.
15. Matthildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1921 í Eyjum, d. 20. febrúar 2002.

Sigurður var með móður sinni í Fagradal til 1899, var hjá foreldrum sínum í Skálmarbæjarhraunum í Álftaveri 1899-1901, í Skálmarbæ 1901-1902, i Skálmarbæjarhraunum 1902-1904, í Holti 1904-1919.
Hann fluttist með foreldrum sínum og 9 systkinum til Eyja 1919, bjó í Háagarði 1920, var leigjandi á Akri 1930, búandi þar 1934.
Þau Sigríður giftu sig 1931, einuðust Guðrúnu Theodóru 1934. Einnig ólu þau upp Guðbjörgu Helgadóttur, síðar Beck, en hún var dóttir Helga Hjálmarssonar á Hamri, móðurbróður Sigríðar konu Sigurðar. Síðar ólu þau upp Elínu dóttur Guðbjargar.
Sigurður vann við verslun í Eyjum og átti í útgerð. Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur 1936, þar sem Sigurður var verslunarmaður og síðar kaupmaður.
Hann lést 1962 og Sigríður 1996.

Kona Sigurðar, (5. september 1931), var Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja frá Akri, f. 6. desember 1909, d. 31. október 1996.
Barn þeirra er
1. Guðrún Theodóra Sigurðardóttir yfirsálfræðingur, f. 31. janúar 1934 á Akri. Maður hennar var Ólafur Stephensen læknir, f. 18. júlí 1934, d. 25. júní 1980.
Fósturbörn Sigríðar og Sigurðar:
2. Guðbjörg Helgadóttir Beck húsfreyja í Reykjavík f. 18. ágúst 1924 á Hamri, d. 28. maí 2013.
Elín dóttir Guðbjargar ólst einnig upp hjá Sigríði og Sigurði:
3. Elín Eyvindsdóttir járnsmiðs í Reykjavík Ólafssonar, f. 17. janúar 1946.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 12. nóvember 1996. Minning Sigríðar Guðmundsdóttur.
  • Niðjamót Solveigar Magnúsdóttur og Jóns Sverrissonar 1. júlí 1995, rit.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.