Sigurður Eyjólfsson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. ágúst 2015 kl. 17:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. ágúst 2015 kl. 17:55 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Eyjólfsson sjómaður frá Löndum fæddist 23. mars 1858 og drukknaði af Gauki 13. mars 1874.
Foreldrar hans voru Eyjólfur Hjaltason tómthúsmaður og bókbindari, f. 19. desember 1821, d. 30. desember 1884, og kona hans Arndís Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1829, d. 14. ágúst 1871.
Sigurður var tæpra 16 ára vinnumaður á Steinsstöðum við andlát.
Bátnum Gauki hlekktist á suður af Klettsnefi 13. mars 1874 og fórust þar 7 menn auk formannsins Sighvatar Sigurðssonar bónda á Vilborgarstöðum, sem lést af afleiðingum slyssins 8. júlí 1874.
Þeir, sem fórust auk formannsins voru:
1. Árni Árnason, bóndi að Vilborgarstöðum, afi Árna símritara Árnasonar frá Grund.
2. Gísli Brynjólfsson ekkjumaður í Móhúsum, sem var ein af Kirkjubæjarjörðunum. Hann var faðir Solveigar Gísladóttur á Arnarhóli, f. 16. september 1838, d. 18. september 1923 í Eyjum, móður Gísla á Arnarhóli.
3. Erlendur Pétursson, vinnumaður í Litlakoti (nú Veggur).
4. Jón Jónsson húsmaður í Dölum.
5. Sigurður Eyjólfsson vinnumaður á Steinsstöðum.
6. Brynjólfur Einarsson frá Dölum, vinnumaður í Jónshúsi.
7. Stefán Jónsson Austmann í Vanangri.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.