Sigurjón Halldórsson (Kanastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. ágúst 2020 kl. 12:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. ágúst 2020 kl. 12:17 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurjón Halldórsson.

Sigurjón Halldórsson bifreiðastjóri, verkamaður, vélstjóri fæddist 6. mars 1902 á Húsavík og lést 9. desember 1963.
Foreldrar hans voru Halldór Nikulás Sigurjónsson tré- og steinsmiður í Traðargerði á Húsavík, f. 22. desember 1868, d. 30. október 1936, og kona hans Ingibjörg Stefánsdóttir húsfreyja, f. 30. janúar 1874, d. 11. mars 1951.

Sigurjón var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Traðargerði á Húsavík 1910 og 1920.
Hann leitaði til Eyja, var bifreiðastjóri þar, er þau Sigríður eignuðust Elías Ben 1927. Þau eignuðust ellefu börn, bjuggu á Kanastöðum, Hásteinsvegi 22 1927 og 1929.
Þau fluttust til Akureyrar og höfðu þar skamma dvöl, en þar fæddist Mary Alberty 1930. Síðan fluttust þau til Húsavíkur og bjuggu þar lengst, en að síðustu í Reykjavík.
Sigurjón lést 1963 og Sigríður 1985.

I. Kona Sigurjóns var Elísabet Sigríður Friðriksdóttir frá Gröf, húsfreyja, f. þar 2. október 1905, d. 21. apríl 1985.
Börn þeirra:
1. Elías Ben Sigurjónsson bifvélavirki í Reykjavík, síðar í Svíþjóð, f. 1. júlí 1927 á Kanastöðum, d. 19. desember 1998. Kona hans Ingibjörg Marsibil Ólafsdóttir.
2. Halldór Friðrik Sigurjónsson tæknimaður í Svíþjóð, f. 19. febrúar 1929 á Kanastöðum, d. 9. júlí 2013. Kona hans Sylvía Anderson.
3. Mary Alberty Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja, f. 20. mars 1930 á Akureyri, d. 3. ágúst 2009. Maður hennar var Jón Frímann Sigvaldason.
4. Benoný Sigurjónsson skipstjóri, býr í Svíþjóð, f. 31. maí 1931. Kona hans Inger Öklund.
5. Kolbeinn Oddur Sigurjónsson sjómaður, f. 12. september 1932, d. 27. maí 2020. Barnsmóðir hans var Rannveig Snót Einarsdóttir. Kona hans, (skildu), var Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal.
6. Kári Rafn Sigurjónsson vélvirki á Hvolsvelli, f. 1. október 1933. Kona hans Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir.
7. Kolbrún Hulda Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 25. febrúar 1936. Maður hennar var Ingibergur Garðar Tryggvason.
8. Sigrún Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 8. júlí 1937, d. 25. ágúst 2014. Maður hennar Pálmi Jónsson.
9. Gylfi Þór Sigurjónsson verslunarstjóri, f. 7. júlí 1942. Kona hans Jóna Bjarnadóttir.
10. Ingibjörg Sigurjónsdóttir Bankley, bjó í Bandaríkjunum, f. 18. október 1943, d. 24. apríl 2016. Maður hennar Richard Bankley .
11. Óskar Berg Sigurjónsson bifvélaviðgerðarmaður, f. 24. maí 1948. Sambýliskona var Olga Thorarensen.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.