Sigurjón Einarsson (Búðarhóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. nóvember 2019 kl. 11:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. nóvember 2019 kl. 11:14 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurjón Einarsson og Margrét Fríða Jósepsdóttir.

Sigurjón Einarsson bóndi á Búðarhóli í A-Landeyjum fæddist 7. apríl 1894 á Krossi þar og lést 19. október 1987.
Faðir Sigurjóns var Einar bóndi á Búðarhóli 1912-1931, f. 29. apríl 1867, d. 4. ágúst 1950, Nikulásson bónda í Krosshjáleigu (nú Kross II) í A-Landeyjum, f. 5. maí 1833, d. 9. mars 1889, Árnasonar bónda í Rimakoti, f. 5. ágúst 1803, d. 12. janúar 1854, Pálssonar, og fyrri konu Árna Pálssonar í Rimakoti, (30. október 1829), Ingveldar húsfreyju, f. 29. september 1806 á Núpi undir Eyjafjöllum, d. 6. ágúst 1843, Ormsdóttur.
Móðir Einars bónda á Búðarhóli og kona Nikulásar var Oddný húsfreyja, f. 20. apríl 1837, d. 17. apríl 1891, Gunnlaugsdóttir bónda og formanns í Litlu-Hildisey, f. 28. ágúst 1804 á Bryggjum, d. 21. nóvember 1884 í Litlu-Hildisey, Einarssonar bónda í Litlu-Hildisey Árnasonar, og konu Gunnlaugs í Litlu-Hildisey (28. nóvember 1803) Oddnýjar húsfreyju, f. 1769 á Ljótarstöðum í A-Landeyjum, Guðmundsdóttur bónda á Skíðbakka Þorleifssonar.

Móðir Sigurjóns og kona (3. júní 1892) Einars á Búðarhóli var Valgerður húsfreyja, f. 15. maí 1870, d. 15. júlí 1941, Oddsdóttir bónda á Krossi í A-Landeyjum og formanns við Fjallasand og í Eyjum, f. 7. október 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóvember 1922 á Heiði á Rangárvöllum, Péturssonar bónda á Hrútafelli, f. 15. júní 1813, d. 14. júní 1862, Oddssonar, og konu Péturs á Hrútafelli, Valgerðar húsfreyju, f. 7. janúar 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjartsdóttur.
Móðir Valgerðar á Búðarhóli og fyrri kona Odds Péturssonar (22. júlí 1869) var Sigríður húsfreyja, f. 5. júlí 1840 í Skálakoti u. Eyjafjöllum, d. 27. febrúar 1885 á Krossi í A-Landeyjum, Árnadóttir.

Börn Valgerðar Oddsdóttur og Einars Nikulássonar í Eyjum:
1. Óskar Pétur Einarsson lögregluþjónn. Kona hans var Guðný Svava Gísladóttir frá Arnarhóli.
2. Guðný Kristjana Einarsdóttir húsfreyja, kona Sigurjóns Pálssonar sjómanns og síðari kona Haraldar Sigurðssonar á Sandi.
3. Sigurbjörg Einarsdóttir húsfreyja í Breiðholti, kona Bjarna dýralæknis.
4. Sigurjón Einarsson bóndi á Búðarhóli. Bjó í Eyjum frá 1952, kvæntur Margréti Jósepsdóttur.

Sigurjón var með foreldrum sínum í æsku, með þeim á Krossi 1901 og 1910, vinnumaður þeirra á Búðarhóli 1920.
Hann eignaðist barn með Þorgerði 1915.
Þau Margrét Fríða bjuggu í Vesturbænum á Búðarhóli 1931-1946, en síðan á allri jörðinni til 1952. Þá fluttu þau til Eyja. Þau giftu sig 1947, eignuðust sex börn, en misstu tvö þeirra nýfædd.
Sigurjón og Margrét Fríða bjuggu á Sólheimum, Njarðarstíg 15 við Gos 1973.
Margrét Fríða lést 1978. Sigurjón bjó á Illugagötu 79.
Hann lést 1987.

I. Barnsmóðir Sigurjóns var Þorgerður Guðmundsdóttir fyrr húsfreyja í Rimakoti, f. 23. ágúst 1894, d. 12. febrúar 1995.
Barn þeirra:
1. Aðalsteinn Sigurjónsson verkamaður á Eyrarbakka, f. 6. júní 1915, d. 21. janúar 1988. Kona hans Sigríður Bergsteinsdóttir.

II. Kona Sigurjóns, (15. mars 1947), var Margrét Fríða Jósepsdóttir frá Núpsseli í Miðfirði, húsfreyja, f. 23. nóvember 1904, d. 10. október 1978.
Börn þeirra:
1. Einar Birgir Sigurjónsson lögregluþjónn, f. 5. maí 1933. Kona hans Sigríður Sigurðardóttir, látin.
2. Sonur, f. 1. mars 1934, d. 4. mars 1934.
3. Friðrik Sigurjónsson, f. 1. mars 1934, d. 5. mars 1934.
4. Valgerður Kristín Sigurjónsdóttir húsfreyja á Bakka, f. 31. desember 1934.
5. Eiríkur Ingvi Sigurjónsson bifreiðastjóri í Keflavík, f. 17. ágúst 1937, d. 2. október 1978. Kona hans Sigrún Karlsdóttir.
6. Heiðrún Gréta Sigurjónsdóttir húsfreyja á Bakkafirði, f. 23. desember 1941. Fyrri maður Sigurður Einarsson. Sambýlismaður Guðmundur Vagnsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Garður.is
  • Íbúaskrá.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.