Sigurjón Óskarsson (skipstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2007 kl. 12:57 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2007 kl. 12:57 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurjón

Sigurjón Óskarsson fæddist í Vestmannaeyjum 3. maí 1945. Hann er sonur hjónanna Þóru Sigurjónsdóttur og Óskars Matthíassonar. Sigurjón er kvæntur Sigurlaugu Alfreðsdóttur og eiga þau 3 börn.

Sigurjón ólst upp við sjómennsku og útgerð þar sem faðir hans var skipstjóri. Þegar Sigurjón var 17 ára gamall fór hann fyrst til sjós. Sigurjón varð formaður árið 1972 og var hann strax aflamikill.

Sigurjón hefur verið afla- og fiskikóngur Vestmannaeyja 11 sinnum á 19 árum.


Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1974.