Sigurgeir Ólafsson (Víðivöllum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 13:04 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 13:04 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Bætti við texta og flokki)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurgeir Ólafsson fæddist á Víðivöllum í Vestmannaeyjum 21. júní 1925 og lést 2. ágúst 2000. Foreldrar hans voru Ólafur Ingibergsson og Guðfinna Jónsdóttir. Árið 1959 kvæntist Sigurgeir Erlu Eiríksdóttur. Þeirra börn eru Eiríkur Heiðar, Guðfinna Guðný, Sæfinna Ásta, Emma H. og Þór. Áður átti Sigurgeir Ólöfu Jónu og Ruth Höllu með Elísu Guðlaugu Jónsdóttur. Sigurgeir var þekktur undir nafninu Siggi Vídó.

Sigurgeir stundaði nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík og starfaði lengi á sjó, bæði hjá öðrum og við eigin útgerð. Hann var forseti bæjarstjórnar 1982-1984, hann var formaður Verðandi á tíma sem og formaður Íþróttafélagsins Þórs.

Í árslok 1983 veiktist Sigurgeir skyndilega, lamaðist og missti mál. Með miklum æfingum tókst honum að komast til nokkurar heilsu á ný og vann sem hafnarstjóri til ársins 1991 og síðan sem skrifstofumaður til ársins 1997.


Heimildir

  • Björgvin Magnússon. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja, 2001.