Sigurgeir Ólafsson (Víðivöllum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júní 2013 kl. 22:12 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júní 2013 kl. 22:12 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Sigurgeir Ólafsson færð á Sigurgeir Ólafsson (Víðivöllum))
Fara í flakk Fara í leit
Sigurgeir Ólafsson. Myndin er tekin árið 1978.

Sigurgeir Ólafsson fæddist á Víðivöllum í Vestmannaeyjum 21. júní 1925 og lést 2. ágúst 2000. Foreldrar hans voru Ólafur Ingileifsson og Guðfinna Jónsdóttir. Árið 1959 kvæntist Sigurgeir Erlu Eiríksdóttur. Þeirra börn eru Eiríkur Heiðar, Guðfinna Guðný, Sæfinna Ásta, Emma H. og Þór. Áður átti Sigurgeir Ólöfu Jónu og Ruth Höllu með Elísu Guðlaugu Jónsdóttur. Sigurgeir var þekktur undir nafninu Siggi Vídó. Bróðir Sigurgeirs var Karl.

Sigurgeir stundaði nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík og starfaði lengi á sjó, bæði hjá öðrum og við eigin útgerð. Hann var forseti bæjarstjórnar 1982-1984, hann var formaður Verðandi á tíma sem og formaður Íþróttafélagsins Þórs.

Í árslok 1983 veiktist Sigurgeir skyndilega, lamaðist og missti mál. Með miklum æfingum tókst honum að komast til nokkurar heilsu á ný og vann sem hafnarstjóri til ársins 1991 og síðan sem skrifstofumaður til ársins 1997.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Sigurgeir:

Bróður Karls bragninn flóða,
bind ég í vísur mynda,
Emmu úr kjalar klemmum
kempan sú tíðum lempar.
Njóturinn frægur nóta
nafni Sigurgeirs fagnar.
Veiðinn er marar meiður,
menn allir Vító [svo] kenna.

Vídó

Sigurgeir var ævinlega kallaður Siggi Vídó. Margir hafa haldið að þetta viðurnefni tengist knattspyrnu en Siggi var lengi vel markvörður hjá Íþróttafélaginu Þór. Sú er þó ekki raunin, viðurnefnið er dregið af æskuheimili hans, Víðivöllum. Hann var kallaður Siggi Víðó sem umbreyttist síðan í Siggi Vídó. Svo kyrfilega festist þetta viðurnefni í sessi að eiginkonan, Erla Eiríksdóttir var aldrei kölluð annað en Erla Vídó sem og börn þeirra hjóna sem öll nefna sig Vídó. Er þetta viðurnefni orðið eins konar ættarnafn þessarar fjölskyldu.


Heimildir

  • Björgvin Magnússon. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja, 2001.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.