Sigurfinna Þórðardóttir (Litla-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. janúar 2020 kl. 17:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. janúar 2020 kl. 17:29 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurfinna Þórðardóttir húsfreyja í Litla-Gerði fæddist 21. nóvember 1883 að Hellum í Mýrdal og lést 13. nóvember 1968.
Faðir hennar var Þórður bóndi á Hellum, f. 3. september 1848 í Skammadal í Mýrdal, d. 17. maí 1891 á Hellum, Jónsson bónda í Skammadal, f. 9. nóvember 1801 í Fjósum þar, d. 22. desember 1879 í Skammadal, Þórðarsonar bónda síðast í Skammadal, f. 1770, d. 22. júlí 1842 í Skammadal, Einarssonar, og konu Þórðar, Emerentíönu húsfreyju, f. 1769 á Kaldrananesi í Mýrdal, d. 27. apríl 1845 í Skammadal, Árnadóttur.
Móðir Þórðar á Hellum og kona Jóns í Skammadal var (23. júlí 1835) Guðrún húsfreyja, f. 18. janúar 1817 á Brekkum í Mýrdal, d. 29. júlí 1892 í Reynishólum þar, Jakobsdóttir bónda á Brekkum og Litlu-Hólum í Mýrdal, f. 1777, d. 2. febrúar 1851 í Fjósum þar, og konu Jakobs, Karítasar húsfreyju, f. 1788 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, d. 4. apríl 1844 í Fjósum, Þorsteinsdóttur.

Móðir Sigurfinnu í Gerði og kona Þórðar á Hellum var, (1878), Ragnhildur húsfreyja; var hjá Jóni Þórðarsyni syni sínum á Nýlendu í Eyjum 1910, f. 30. janúar 1854 á Núpi undir Eyjafjöllum, d. 4. desember 1938 í Litla-Gerði, Jónsdóttir bónda á Núpi, f. 1829, Hannessonar bónda í Vallatúni undir Eyjafjöllum 1835, f. í september 1797 á Brekkum í Mýrdal, og konu Hannesar, Hildar húsfreyju, f. um 1793 að Steinum undir Eyjafjöllum, Eiríksdóttur.
Móðir Ragnhildar og barnsmóðir Jóns á Núpi var Sigríður, vinnukona, f. 1829 í Jórvík í Álftaveri, Gunnsteinsdóttir bónda lengst í Kerlingardal, f. 22. október 1800 í Hörgsdal á Síðu, d. 8. nóvember 1881 í Hvammi í Skaftártungu, Runólfssonar, og konu Gunnsteins, (11. september 1823), Ragnhildar húsfreyju, f. 24. október 1802 á Undirhrauni í Meðallandi, d. 2. júlí 1879 í Kerlingardal, Jónsdóttur.

Börn Ragnhildar og Þórðar:
1. Sigríður Ragnhildur Þórðardóttir, f. 5. júlí 1879, d. 5. febrúar 1881.
2. Jónína Guðlaug Þórðardóttir, f. 29. júní 1880, d. 18. maí 1969, kona (skildu) Vilhjálms Brandssonar, f. 1878.
3. Sigríður Ragnhildur Þórðardóttir, f. 27. maí 1882, d. 22. júlí sama ár.
4. Sigurfinna Þórðardóttir húsfreyja í Gerði, f. 1883.
5. Jón Þórðarson, f. 2. júní 1886, d. 24. sama mánaðar.
6. Jón Þórðarson á Nýlendu, síðar í Hólum, f. 24. júlí 1887, d. 16. júní 1948. Kona hans var Guðbjörg Ágústa Sigurðardóttir, f. 24. ágúst 1887, d. 21. apríl 1974.
7. Guðrún Þórðardóttir, f. 2. desember 1888, húsfreyja á Ljótarstöðum í Skaftártungu og á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri.
8. Gunnsteinn Þórðarson landverkamaður, sjómaður, f. 11. desember 1889, drukknaði af vélbáti í Eyjum 24. mars 1908.
9. Þórður Benóní Þórðarson skipstjóri í Point Roberts í Washington ríki í Bandaríkjunum, f. 28. janúar 1892.
Hálfbróðir þeirra, sammæddur, var
10. Sigurður Magnússon landvinnumaður og sjómaður, síðast á Hólum, f. 17. mars 1896, d. 27. nóvember 1918.

Sigurfinna var með foreldrum sínum á Hellum 1894, tökubarn þar 1894-1896, léttastúlka á Haugnum (Dyrhólahjáleigu) í Mýrdal 1896-1898, vinnukona í Gerðakoti þar 1898-1899. Hún fór til Eyja 1899, var vinnukona á Kirkjubæ 1901, kom frá Reykjavík til Eyja 1907.
Sigurfinna var bústýra í Gerði 1910, síðan húsfreyja þar.

Maður Sigurfinnu í Gerði, (19. desember 1910), var Stefán Sigfús Guðlaugsson skipstjóri og útgerðarmaður í Litla-Gerði, f. 6. desember 1888, d. 13. febrúar 1965.

Börn Stefáns og Sigurfinnu:
1. Guðlaugur Martel, f. 22. febrúar 1910, d. 13. febrúar 1911.
2. Óskar, f. 31. maí 1912, d. 14. nóvember 1916.
3. Guðlaugur Óskar, f. 12. ágúst 1916, d. 22. júlí 1989.
4. Þórhildur, f. 19. marz 1921, d. 20. september 2011.
5. Gunnar Björn, f. 16. desember 1922, d. 27. desember 2010.
6. Stefán Sigfús, f. 16. september 1930.
Fósturdóttir Sigurfinnu og Stefáns, systurdóttir Sigurfinnu var
7. Ragna Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 3. febrúar 1916, d. 3. desember 1979.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.is.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.
  • Garður.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.