Sigurbjörg Jónsdóttir (Hlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurbjörg Jónsdóttir frá Hlíð.

Sigurbjörg Jónsdóttir (Sibba Jóns Hansen) frá Hlíð, húsfreyja í Danmörku fæddist 20. desember 1916 í Hlíð og lést 7. nóvember 1974.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson í Hlíð, útvegsbóndi, rithöfundur, f. 23. október 1878, d. 23. september 1954, og kona hans Þórunn Snorradóttir húsfreyja, f. 20. október 1878, d. 1. ágúst 1947.

Börn Þórunnar og Jóns:
1. Þuríður Kapítóla Jónsdóttir húsfreyja, f. 16. nóvember 1905, d. 14. júlí 1961.
2. Andvana stúlka, f. 29. maí 1908.
3. Guðjón Hreggviður Jónsson bifvélavirkjameistari, f. 11. ágúst 1909, d. 22. desember 1987.
4. Ásta Jónsdóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1911 í Hlíð, d. 12. febrúar 1986.
5. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Danmörku, f. 16. október 1912 í Hlíð, d. 16. apríl 2007.
6. Ólafur Magnús Jónsson skipstjóri, f. 10. mars 1915, fórst 9. febrúar 1944.
7. Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Danmörku, f. 20. desember 1916 í Hlíð, d. 7. nóvember 1974.
Fósturbörn hjónanna:
8. Jóhann Vilmundarson frá Hjarðarholti, verkamaður, f. 24. janúar 1921, d. 4. september 1995.
9. Ólafur Guðmundsson frá Eiðum, trésmíðameistari, kennari á Húsavík, f. 26. október 1927, d. 10. ágúst 2007.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Hún flutti til Danmerkur á fjórða áratugnum, giftist Börge. Þau eignuðust tvö börn.
Sigurbjörg lést 1974.

Sigurbjörg og Börge Hansen.

I. Maður Sigurbjargar var Börge Hansen.
Börn þeirra:
1. Hans Olav Hansen, f. 7. apríl 1949, d. 19. mars 1985. Kona hans Auður Jónsdóttir.
2. Kirsten Hansen, f. 27. september 1956. Maður hennar Niels Bekkevold.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.