Sigurbergur Hávarðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. október 2015 kl. 13:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. október 2015 kl. 13:22 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurbergur Hávarðsson.

Sigurbergur Hávarðsson rafeindavirki, síðar í Kópavogi, f. 12. nóv. 1927 og lést 30. ágúst 2015.
Foreldrar hans voru Hávarður Þórðarson, f. 1902 og barnsmóðir hans Guðfinna Einarsdóttir, f. 1906.
Stjúpfaðir Sigurbergs var Þórður Elías Sigfússon, f. 1900.

Sigurbergur ólst upp hjá móður sinni og stjúpföður. Hann hóf störf í rafvirkjun hjá Haraldi Eiríkssyni, lauk námi í útvarpsvirkjun (rafeindavirkjun) hjá Viðgerðarstofu Útvarpsins í Reykjavík 1950.
Hann vann síðan við rafeindavirkjun í Eyjum til goss 1973. Hjá Heimilistækjum ehf í Reykjavík vann hann í allmörg ár, og kennari við Iðnskólann í Reykjavík var hann frá 1977-1998.
Sigurbergur lést 2015.

Kona (17. apríl 1954): Anna Petrína Ragnarsdóttir húsfreyja, f. 30. sept. 1930.
Börn þeirra:

  1. Eyþór, f. 1954,
  2. Ómar, f. 1958,
  3. Ívar, f. 1963,
  4. Edda, f. 1965,
  5. Ester, f. 1968.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.