Sigurbergur Hávarðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. febrúar 2021 kl. 12:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. febrúar 2021 kl. 12:01 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurbergur Hávarðsson.

Sigurbergur Hávarðsson rafeindavirki, síðar í Kópavogi, f. 12. nóv. 1927 og lést 30. ágúst 2015.
Foreldrar hans voru Hávarður Þórðarson, f. 1902 og barnsmóðir hans Guðfinna Einarsdóttir, f. 1906.
Stjúpfaðir Sigurbergs var Þórður Elías Sigfússon, f. 1900.

Sigurbergur ólst upp hjá móður sinni og stjúpföður. Hann hóf störf í rafvirkjun hjá Haraldi Eiríkssyni, lauk námi í útvarpsvirkjun (rafeindavirkjun) hjá Viðgerðarstofu Útvarpsins í Reykjavík 1950.
Hann vann síðan við rafeindavirkjun í Eyjum til goss 1973.
Hjá Heimilistækjum ehf í Reykjavík vann hann í allmörg ár, og kennari við Iðnskólann í Reykjavík var hann frá 1977-1998.
Sigurbergur lést 2015.

I. Kona Sigurbergs, (17. apríl 1954), Anna Petrína Ragnarsdóttir húsfreyja, f. 30. sept. 1930.
Börn þeirra:
1. Eyþór Sigurbergsson rafeindavirki í Noregi, vinnur ýmis tæknistörf, f. 2. ágúst 1954. Kona hans Turid Lismoen.
2. Ómar Sigurbergsson húsgagnasmiður, húsgagna- og innanhússarkitekt, f. 26. september 1958. Fyrrum kona hans Dagbjört Guðmundsdóttir. Kona hans Sif Gunnarsdóttir.
3. Ívar Sigurbergsson tónlistarkennari, f. 7. júlí 1963. Kona hans Auður Ögmundsdóttir.
4. Edda Sigurbergsdóttir fjármálastarfsmaður, f. 3. ágúst 1965. Fyrrum eiginmaður Sævar Guðmundsson.
5. Ester Sigurbergsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. ágúst 1968. Fyrrum sambúðarmaður hennar Oddsteinn Björnsson. Maður hennar Anton Guðmundsson.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.