Sigurður Oddsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. ágúst 2019 kl. 19:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. ágúst 2019 kl. 19:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður og Ingunn.

Sigurður Pétur Oddsson, Skuld, fæddist 28. mars 1880 á Krossi í Landeyjum og lést 10. maí 1945. Foreldrar Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyja, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar. Móðir Sigurðar Péturs og f.k.h. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.

Kona Sigurðar var Ingunn Jónasdóttir húsfreyja. Synir þeirra voru skipstjórarnir Jónas, Oddur og Ólafur og Jónas Ragnar prentari. Dætur þeirra voru húsfreyjurnar Þórunn Lovísa, Elínborg, Sigurbjörg, Stefanía, Jóhanna Júlía, Jónheiður Árný og Sigríður Inga.
Árið 1900 fer Sigurður til Vestmannaeyja og er þá háseti á Bergþóru hjá Magnúsi í Dal en árið 1908 kaupir Sigurður Björg ásamt fleirum og er háseti á henni til 1910. Þá byrjar hann formennsku á Kapítólu. Tveimur árum síðar kaupir hann Baldur VE-24 og var formaður þar til 1923.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.