Sigurður Magnússon (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2015 kl. 14:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2015 kl. 14:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Magnússon bóndi í Háagarði fæddist 28. mars 1794 í Ystabæliskoti u. Eyjafjöllum og lést 10. febrúar 1833.
Faðir hans var Magnús Jónsson, þá bóndi í Ystabæliskoti, f. 1765 og kona hans Sesselja Árnadóttir húsfreyja, f. 1769, d. 7. febrúar 1841.

Kona Sigurðar, (25. október 1818), var Björg Brynjólfsdóttir húsfreyja, f. 10. mars 1788, d. 6. janúar 1853. Hann var fyrri maður hennar. Síðari maður Bjargar, (1835), var Sigurður Jónsson bóndi í Háagarði, f. 24. desember 1801, d. 21. maí 1859.

Börn Sigurðar Magnússonar og Bjargar hér:
1. Brynjólfur Sigurðsson, f. 30. janúar 1821, d. 6. febrúar 1821 úr „Barnaveiki“.
2. Valgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Háagarði, f. 31. ágúst 1822, d. 3. febrúar 1894, kona Sveins Sveinssonar, f. 1825.
3. Sesselja Sigurðardóttir, f. 13. apríl 1826, d. 7. apríl 1826 úr „Barnaveiki“.
4. Sigurður Sigurðsson, f. 19. júlí 1827, d. 8. ágúst 1827 úr „Barnaveiki“.
5. Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Miðmörk u. Eyjafjöllum, f. 20. ágúst 1832, d. 24. október 1916, kona Eyjólfs Eyjólfssonar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.