Sigurður Jónsson yngri (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. október 2015 kl. 20:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. október 2015 kl. 20:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigurður Jónsson''' verslunarmaður frá Háagarði fæddist 24. júlí 1898 í Fagradal í Mýrdal og lést 22. apríl 1962.<br> Foreldrar hans voru [[Jón Sverr...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Jónsson verslunarmaður frá Háagarði fæddist 24. júlí 1898 í Fagradal í Mýrdal og lést 22. apríl 1962.
Foreldrar hans voru Jón Sverrisson bóndi, yfirfiskimatsmaður, f. 22. janúar 1871, d. 5. mars 1968, og kona hans Solveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 20. ágúst 1879, d. 21. apríl 1955.

Börn Solveigar og Jóns voru:
1. Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 24. júlí 1898, d. 22. apríl 1962.
2. Sverrir Magnús Jónsson sjómaður, f. 25. júní 1900, drukknaði af Minervu 24. janúar 1927.
3. Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri, f. 11. júní 1901, d. 28. júlí 1959.
4. Einar Jónsson skipstjóri, f. 16. desmber 1902, drukknaði af Mínervu 24. janúar 1927.
5. Solveig Magnea Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. nóvember 1904, d. 10. desember 1984.
6. Sigurjón Jónsson skipstjóri, síðar verkamaður, f. 18. janúar 1906, d. 5. október 1979.
7. Lilja Jónsdóttir hárgreiðslukona, f. 5. maí 1907, d. 28. desember 2006.
8. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1908, d. 24. apríl 1993.
9. Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.
10. Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
11. Kjartan Jónsson lyfjafræðingur, f. 1. maí 1914, d. 5. júní 2004.
12. Svanhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 11. mars 2006.
13. Rannveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 23. apríl 2002.
14. Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður, gangavörður, f. 11. desember 1919 í Eyjum, d. 1. maí 2011.
15. Matthildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1921 í Eyjum, d. 20. febrúar 2002.

Sigurður var með móður sinni í Fagradal til 1899, var hjá foreldrum sínum í Skálmarbæjarhraunum í Álftaveri 1899-1901, í Skálmarbæ 1901-1902, i Skálmarbæjarhraunum 1902-1904, í Holti 1904-1919.
Hann fluttist með foreldrum sínum og 9 systkinum til Eyja 1919, bjó í Háagarði 1920, var leigjandi á Akri 1930, búandi þar 1934.
Sigurður vann við verslun í Eyjum og síðan í Reykjavík.
Hann lést 1962.

Kona Sigurðar, (5. september 1931), var Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja frá Akri, f. 6. desember 1909, d. 31. október 1996.
Barn þeirra er
1. Guðrún Theodóra Sigurðardóttir sálfræðingur, f. 31. janúar 1934 á Akri. Maður hennar var Ólafur Stephensen læknir, f. 18. júlí 1934, d. 25. júní 1980.
Fósturbarn Sigríðar og Sigurðar:
2. Elín Eyvindsdóttir járnsmiðs í Reykjavík Ólafssonar, f. 17. janúar 1946.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.