Sigurður Ingimundarson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Sigurður Ingimundarson frá Gjábakka fæddist 12. júní 1872 og lést 31. maí 1890.
Foreldrar hans voru Ingimundur Jónsson sjávarbóndi á Gjábakka, f. 20. ágúst 1829 á Reyni í Mýrdal, d. 25. apríl 1912, og kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. maí 1835 í Eyjum, d. 6. febrúar 1916.

Systkini Sigurðar voru:
1. Jón Ingimundarson skipasmiður og útvegsmaður í Mandal, f. 3. ágúst 1855, d. 21. apríl 1937, kvæntur Sigríði Guðnýju Guðmundsdóttur húsfreyju, f. 22. apríl 1957, d. 12. maí 1914.
2. Þóranna Ingimundardóttir húsfreyja og ljósmóðir í Nýborg, f. 16. janúar 1859, d. 14. mars 1929, gift Sigurði Sveinssyni bónda, útgerðarmanni og smið, f. 28. júlí 1841, d. 11. maí 1929. Þau voru áar Háeyrarfjölskyldunnar
3. Stefán Ingimundarson, f. 17. ágúst 1860, d. 11. febrúar 1866 „úr uppdráttarveiki“.
4. Sigríður Ingimundardóttir vinnukona, f. 8. desember 1861, d. 19. apríl 1898. Hún átti börn með Gísla Árnasyni gullsmið. Börnin voru
a) Katrín Gísladóttir, síðar í Reykjavík, f. 12. desember 1885, d. 28. október 1907.
b) Árni Gíslason læknir, f. 19. ágúst 1887 á Gjábakka, d. 9. október 1917 í Bolungarvík.
5. Kristján Ingimundarson útvegsbóndi og fiskimatsmaður í Klöpp, f. 26. júní 1867, d. 14. október 1952, kvæntur Sigurbjörgu Sigurðardóttur húsfreyju, f. 3. maí 1861, d. 10. mars 1931..
Þau voru foreldrar Guðfinnu Kristjánsdóttur konu Georgs Gíslasonar.
6. Sesselja Ingimundardóttir húsfreyja, f. 16. september 1874, d. 1. apríl 1949, gift Jóni Einarssyni kaupmanni og útgerðarmanni á Stóra Gjábakka, f. 8. apríl 1867, d. 19. desember 1936.
7. Jónína Björg Ingimundardóttir vinnukona, f. 9. apríl 1877, d. 3. janúar 1930.
8. Fríður Ingimundardóttir húsfreyja, f. 23. maí 1881, d. 8. júní 1950, gift Jóni Hjálmarssyni útgerðarmanni í Sætúni, f. 24. október 1890, d. 18. nóvember 1945.
Meðal barna þeirra var Árna Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 15. febrúar 1920, d. 20. febrúar 1945 á Vífilsstöðum úr berklum. Hún var fyrri kona Einars Guðmundar Ólafssonar frá Búðarfelli.
Dóttir þeirra er Guðný Fríða Einarsdóttir húsfreyja, kona Sigurðar Georgssonar.
Hálfbróðir Sigurðar, samfeðra, var
9. Páll Ingimundarson, f. 10. ágúst 1854, d. 19. mars 1902.
Sonur hans var Einar Pálsson vélstjóri í Langholti, Vestmannabraut 48a, f. 5. maí 1875, d. 4. desember 1918, kvæntur Jónínu Guðmundsdóttur, f. 19. maí 1877, d. 31.desember 1925.

Sigurður var með foreldrum sínum-dd. Hann lést 1890 úr lungnabólgu, tæpra 18 ára.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.