Sigurður Friðriksson (verkstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Friðriksson.

Sigurður Friðriksson frá Rauðhálsi í Mýrdal, útgerðarmaður, vélstjóri, verkstjóri fæddist 22. ágúst 1898 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal og lést 7. maí 1980, jarðsettur í Kotstrandarkirkjugarði í Ölfusi.
Foreldrar hans voru Friðrik Vigfússon bóndi á Rauðhálsi, f. 2. apríl 1871 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 17. nóvember 1916 á Rauðhálsi og kona hans Þórunn Sigríður Oddsdóttir húsfreyja, f. 5. júlí 1875 í Pétursey í Mýrdal, d. 23. júlí 1959 í Eyjum.

Börn Þórunnar og Friðriks:
1. Vigfús Friðriksson vinnumaður á Rauðhálsi, f. 13. febrúar 1897, d. 3. júní 1918 í Eyjum.
2. Sigurður Friðriksson útgerðarmaður, síðar verkstjóri, Hásteinsvegi 17, f. 22. ágúst 1898, d. 7. maí 1980, kvæntur Elísabet Hallgrímsdóttur.
3. Þorbergur Friðriksson skipstjóri, f. 10. des. 1899, fórst með b/v Sviða 2. desember 1941.
4. Þórunn Friðriksdóttir húsfreyja að Birtingarholti við Vestmannabraut 61, f. 28. apríl 1901, d. 13. júlí 1972, kona Ingvars Þórólfssonar.
5. Ragnhildur Friðriksdóttir húsfreyja að Brekastíg 3, Sólbergi, f. 5. júní 1902, d. 16. ágúst 1977, kona Guðlaugs Halldórssonar.
6. Oddsteinn Friðriksson útgerðarmaður, vélstjóri, f. 27. júní 1903, d. 21. sept 1987, kvæntur, (skildu), Þorgerði Hallgrímsdóttur, systur Elísabetar konu Sigurðar bróður hans.
7. Árþóra Friðriksdóttir húsfreyja í Stykkishólmi, f. 23. desember 1904, d. 17. marz 1990.
8. Högni Friðriksson sjómaður, f. 2. júlí 1907, d. 17. júní 1929.
9. Sigríður Friðriksdóttir húsfreyja, fiskverkakona, verkstjóri, f. 3. júlí 1908, d. 28. febrúar 2011. Maður hennar Halldór Halldórsson.
10. Kristín Friðriksdóttir húsfreyja á Norður-Hvoli í Mýrdal, f. 4. maí 1910, d. 23. október 2009.
11. Ólafur Friðriksson verkamaður á Selfossi, síðast í Hveragerði, f. 29. ágúst 1911, d. 26. jan. 1984.
12. Ragnheiður Friðriksdóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1912, d. 12. júlí 1984, kona Haraldar Þorkelssonar.
13. Þórhallur Friðriksson bifreiðastjóri í Eyjum, síðar smiður og umsjónarmaður í Skógum u. Eyjafjöllum, en síðast búsettur á Selfossi, f. 3. nóv. 1913, d. 29. janúar 1999, kvæntur Elínu Þorsteinsdóttur.
14. Þórhalla Friðriksdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 15. apríl 1915, d. 7. nóvember 1999, kona Þorvaldar Guðjónssonar, (skildu), síðar kona Ásmundar Friðrikssonar. Að lokum giftist hún Brynjólfi Hallgrímssyni bróður Elísabetar og Þorgerðar. Þau bjuggu í Kópavogi.
15., 16. og 17. Þrjú börn fædd andvana.

Sigurður var með foreldrum sínum, á Ytri-Sólheimum til 1900 og Rauðhálsi 1900-1917.
Hann kom til Eyja 1919, verkamaður, bjó í Vinaminni 1920, flutti til Eyja 1922, eignaðist Birtingarholt, bjó þar.
Á þessum tíma eignaðist hann m/b Gunnar Hámundarson VE 271 með Oddsteini bróður sínum og Vigfúsi Sigurðssyni frá Pétursborg. Gekk sú útgerð vel fram að Kreppunni miklu, en þá varð sú útgerð endaslepp.
Sigurður var vélstjóri, síðan verkstjóri hjá ýmsum fyrirtækjum, m.a. Fiski & ís, en lengst hjá Vinnslustöðinni.
Þau Elísabet giftu sig 1926 í Eyjum, eignuðust 3 börn, en misstu eitt þeirra þriggja ára. Þau bjuggu í Birtingarholti við Vestmannabraut 61, þá á Vestmannabraut 72 til 1944, og síðan á Hásteinsvegi 17. Þar bjuggu þau til Goss. Þau fluttu á Stokkseyri og bjuggu þar um skeið. Elísabet bjó síðast að Eyjaseli 3 á Selfossi (í Árborg).
Sigurður lést 1980 og Elísabet 2004.

Kona Sigurðar, (13. nóvember 1926), var Ísleif Elísabet Hallgrímsdóttir frá Felli í Mýrdal, húsfreyja, f. 4. apríl 1905, d. 30. mars 2004.
Börn þeirra:
1. Sigurveig Sigurðardóttir, f. 29. september 1927 í Birtingarholti, d. 4. apríl 1930.
2. Högna Sigurðardóttir arkitekt, f. 6. júlí 1929 í Birtingarholti, d. 10. febrúar 2017.
3. Móeiður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1944 á Vestmannabraut 72.
Barn Sigurðar og Guðmundínu Sigurveigar Stefánsdóttur:
4. Sigurður Sigurðsson stofnandi Loftorku, forstjóri, f. 28. apríl 1926 í Reykjavík, d. 31. janúar 2003.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.