Sigurður Brandsson (Elínarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Sigurður Brandsson vinnumaður í Nýborg, síðar í Vesturheimi fæddist 18. september 1864 og lést 16. maí 1927.
Foreldrar hans voru Brandur Brandsson bóndi, þá í Ranakoti efra í Stokkseyrarhreppi, f. 16. júlí 1830, d. 23. apríl 1919, og kona hans Valgerður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 21. júní 1830, d. 9. febrúar 1881.

Bróðir Sigurðar var
1. Jón Brandsson sjómaður á Oddsstöðum f. 26. febrúar 1866, d. 6. maí 1941.

Sigurður fluttist frá Þykkvabæ að Nýborg 1890 og var þar vinnumaður, í Elínarhúsi 1891 og 1892. Þar var Guðríður vinnukona. Hann fór þaðan til Vesturheims 1892, áður en Sigríður fæddist.

I. Barnsmóðir Sigurðar var Guðríður Sigurðardóttir frá Búastöðum, f. 13. ágúst 1867, d. 10. mars 1919.
Barn þeirra var
1. Sigríður Sigurðardóttir, f. 12. janúar 1893. Hún fór til Ameríku 1904.

II. Kona Sigurðar var Guðbjörg Steinunn Ólafía Ólafsdóttir í Winnipeg. Hún var lausakona á Ísafirði 1912, fór til Vesturheims frá Ísafirði 1912. Hún var fædd 31. janúar 1881 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Ólafur Ólafsson vatnsberi í Reykjavík, kallaður ,,Ólafur ræðumaður“. Kona hans var Ingibjörg Pálína Pálsdóttir, f. 1845 í Reykjavík.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.