Sigríður Sigurðardóttir (Vatnsdal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. desember 2022 kl. 17:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. desember 2022 kl. 17:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal, húsfreyja fæddist þar 26. ágúst 1932 og lést 2. maí 1992.
Foreldrar hennar voru Sigurður Högnason frá Vatnsdal, verkamaður, f. 4. október 1897 á Norðfirði, d. 30. ágúst 1951, og kona hans Ingibjörg Ólafsdóttir húsfreyja, f. 28. mars 1907 í Vík í Mýrdal, d. 6. janúar 1989.

Börn Ingibjargar og Sigurðar:
1. Ásta Hildur Sigurðardóttir, f. 11. janúar 1928 í Vatnsdal, d. 4. nóvember 2014.
2. Högni Sigurðsson, f. 19. janúar 1929 í Vatnsdal, d. 11. september 2018.
3. Ólafur Ragnar Sigurðsson, f. 3. mars 1931 í Vatnsdal.
4. Sigríður Sigurðardóttir, f. 26. ágúst 1932 í Vatnsdal, d. 2. maí 1992.
5. Kristín Ester Sigurðardóttir, f. 5. febrúar 1939 í Vatnsdal, d. 11. maí 1988.
6. Hulda Sigurbjörg Vatnsdal Sigurðardóttir, f. 27. ágúst 1947 í Vatnsdal.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku.
Hún tók gildan þátt í íþróttum, handbolta og frjálsum íþróttum, var Íslandsmeistari í kúluvarpi 1951.
Þau Kolbeinn giftu sig 1955, eignuðust sjö börn, þar taldir þríburar.
Þau bjuggu á Hvoli við Urðaveg 17, skildu 1974.
Þau Einar Birgir giftu sig 1978.
Sigríður bjó síðast á Illugagötu 79. Hún lést 1992.

Sigríður var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (31. desember 1955), var Kolbeinn Oddur Sigurjónsson sjómaður, f. 12. september 1932, d. 27. maí 2020.
Börn þeirra:
1. Harpa Kolbeinsdóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður í Hraunbúðum, f. 10. febrúar 1954 í Vatnsdal. Fyrrum sambúðarmaður hennar Páll Sveinsson. Fyrrum maður hennar Haraldur Geir Hlöðversson. Fyrrum maður hennar Gestur Gunnbjörnsson. Maður hennar Ómar Valur Eðvaldsson.
2. Anna Ísfold Kolbeinsdóttir verkakona, sjókona, starfsmaður Hraunbúða, þríburi, f. 24. nóvember 1955, d. 21. júní 2017. Fyrrum sambýlismaður hennar Halldór Guðmundsson, látinn. Fyrrum sambýlismaður hennar Haukur Hauksson.
3. Marý Ólöf Kolbeinsdóttir verkakona, skrifstofumaður, rekur Miðstöðina með eiginmanni sínum, þríburi, f. 24. nóvember 1955. Maður hennar Sigurvin Marinó Sigursteinsson.
4. Guðrún Fjóla Kolbeinsdóttir húsfreyja, rekur veitingastað í Vogum á Vatnsleysuströnd, þríburi, f. 24. nóvember 1955. Fyrrum sambýlismaður Sigurjón Ragnar Grétarsson. Maður hennar Jörundur Guðmundsson.
5. Ingibjörg Sigríður Kolbeinsdóttir verkakona, starfsmaður Hraunbúða, f. 4. desember 1957. Sambýlismaður hennar Baldur Þór Bragason
6. Elfa Sigurjóna Kolbeinsdóttir húsfreyja í Englandi, vinnur við umönnun aldraðra, f. 17. maí 1963. Maður hennar Patrick Tear.
7. Kolbeinn Freyr Kolbeinsson verkamaður, öryrki, f. 10. mars 1973. Fyrrum sambýliskona hans Jóhanna Ýr Jónsdóttir.

II. Síðari maður Sigríðar, (31. desember 1978), er Einar Birgir Sigurjónsson frá Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 5. maí 1933.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.