Sigríður Sigurðardóttir (Garðbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júní 2021 kl. 17:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júní 2021 kl. 17:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigríður Sigurðardóttir (Garðbæ)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Fanney Sigríður Sigurðardóttir frá Rafnseyri, húsfreyja í Eyjum og Reykjavík fæddist 30. janúar 1912 í Garðbæ og lést 29. maí 1968.
Foreldrar hennar voru Sigurður Ólafsson frá Gularáshjáleigu í A-Landeyjum, sjómaður, f. 11. desember 1879, d. 18. nóvember 1918, og kona hans Margrét Þorsteinsdóttir frá Árgilsstöðum í Hvolhreppi, húsfreyja, f. 24. september 1876, d. 8. nóvember 1952.

Hálfbróðir Sigríðar, sammæddur, var
1. Ólafur Ragnar Sveinsson heilbrigðisfulltrúi á Flötum, f. 25. ágúst 1903, d. 2. maí 1970. Kona hans Kristjana Ragnheiður Kristjánsdóttir.
Börn Margrétar og Sigurðar voru:
2. Ólafía Þórunn Sigurðardóttir verkakona, f. 12. júní 1906 í Landeyjum, bjó síðast að Laufási 7 í Garðabæ, d. 9. febrúar 1990, ógift.
3. Þuríður Vilhelmína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 31. október 1907 í Garðbæ, d. 27. júlí 1992. Barnsfaðir Ólafur Jónsson. Maður hennar Sigurlás Þorleifsson.
4. Bogi Óskar Sigurðsson kvikmyndasýningamaður, f. 12. desember 1910 í Garðbæ, d. 14. mars 1980. Kona hans Sigurlaug Auður Eggertsdóttir.
5. Fanney Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. janúar 1912 í Garðbæ. Maður hennar Guðmundur Pálsson.
6. Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir, f. 7. maí 1915 á Rafnseyri, d. 14. maí 1987. Maður hennar Friðrik Þórarinn Gunnlaugsson.
7. Sigríður Þórhildur Sigurðardóttir, f. 6. nóvember 1916 á Rafnseyri, d. 26. maí 1971. Barnsfaðir Gústaf Adolf Valdimarsson. Maður hennar Kjartan Guðmundsson.
8. Sigurður Guðlaugsson hárskeri, f. 19. júlí 1918, d. 3. júlí 1958. Hann var kjörsonur Guðlaugs Sigurðssonar, síðari manns Margrétar. Kona hans Kristín Guðmundsdóttir
Fósturdóttir Margrétar og Guðlaugs var systurdóttir hans
9. Sigurbjörg Guðmundína Alda Friðjónsdóttir, f. 19. janúar 1926 í Götu. Hún var fósturbarn hjá Guðlaugi 1934, d. í febrúar 1985.

Sigríður var með foreldrum sínum í í fyrstu, en faðir hennar lést, er hún var á sjöunda árinu. Hún var stjúpbarn Guðlaugs, síðari manns móður sinnar.
Þau Guðmundur giftu sig 1937, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í fyrstu á Stóra Gjábakka við Bakkastíg 8 í Eyjum, þá í Reykjavík, síðast í Ásgarði 43.
Sigríður lést 1968 og Guðmundur 1984.

I. Maður Fanneyjar Sigríðar, (8. október 1937), var Guðmundur Pálsson frá Seyðisfirði, sjómaður, f. þar 4. maí 1908, d. 10. febrúar 1984.
Börn þeirra:
1. Sigurður Ólafs Guðmundsson, f. 27. ágúst 1938 á Stóra Gjábakka. Kona hans Kristrún Ólafsdóttir.
2. Páll Guðmundur Guðmundsson, f. 30. júlí 1941 í Reykjavík, d. 15. mars 2021. Fyrrum kona hans Sigríður Svanhildur Magnúsdóttir Snæland. Kona hans Ásta Jónsdóttir.
3. Margrét Guðmundsdóttir, f. 13. september 1944 í Reykjavík. Maður hennar Bergþór Einarsson.
4. Guðrún Eygló Guðmundsdóttir, f. 9. júní 1953 í Reykjavík. Maður hennar Helgi Klaus Pálsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Víkingslækjarætt – niðjatal Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hreppstjóra, IV. Pétur Zophoníasson og fleiri. Skuggsjá 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.