Sigríður Jónsdóttir (Hólnum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2015 kl. 18:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2015 kl. 18:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Jónsdóttir bústýra á Oddsstöðum fæddist 20.apríl 1828 á Velli í Hvolhreppi og lést 6. mars 1900.
Faðir hennar var Jón bóndi á Velli í Hvolhreppi, á Hrútafelli og Helgusöndum u. Eyjafjöllum, f. 1801 í Breiðavíkursókn, d. 17. nóvember 1859, Brynjólfsson.
Móðir Katrínar var Þóra húsfreyja, f. 1799, d. 4. mars 1864, Jónsdóttir bónda í Steinum og á Hrútafelli, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafelli, Eiríkssonar bónda, líklega á Leirum u. Eyjafjöllum, f. 1736, Jónssonar og konu Eiríks á Leirum, Katrínar húsfreyju, f. 1725, d. 19. janúar 1805, Jónsdóttur.

Sigríður var systir
1. Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju á Löndum, f. 21. júlí 1829, d. 29. apríl 1873.
2. Ísaks Jakobs Jónssonar bónda í Norðurgarði, f. 20. janúar 1833, d. 9. apríl 1899.
3. Þuríðar Jónsdóttur vinnukonu, f. 13. desember 1833.
4. Katrínar Jónsdóttur vinnukonu, f. 15. maí 1847, d. 9. maí 1869.

Sigríður var með foreldrum sínum á Velli og í bernsku, var tökubarn hjá hjá Þórdísi Magnúsdóttur og Erlendi Höskuldssyni á Borgareyrum 1840, fermdist frá þeim 1843, var vinnukona hjá þeim 1845, í Steinmóðarbæ u. Eyjafjöllum 1850.
Hún fluttist að Móhúsum 1851 undan Eyjafjöllum, var vinnukona á Búastöðum 1852 og enn 1855.
Sigríður var bústýra Guðmundar Guðmundssonar á Hólnum 1856 og 1857, var með Sigurð, son þeirra Guðmundar, á fyrsta ári í Ottahúsi 1858, vinnuhjú í Nöjsomhed 1859, er hún ól andvana barn, en Sigurður var þá hjá föður sínum á Hólnum.
Hún var vinnukona í Nöjsomhed 1860, í Kornhól 1861-1864, í Jónshúsi 1865, í Stakkagerði 1866-1869, í Garðinum 1870-1873, í Stakkagerði 1874.
Sigríður var bústýra hjá Þorsteini Jónssyni ekkli á Oddsstöðum 1875 og enn 1890, en á því ári lést Þorsteinn bóndi.
Hún var 66 ára vinnukona í Klöpp 1895.
Sigríður var blind síðustu ár sín, lést á sveit á Kirkjubæ 1900.

I. Barnsfaðir Sigríðar var Guðmundur Guðmundsson smiður, f. 1828, d. 26. september 1890.
Barn þeirra var
1. Sigurður Guðmundsson, kallaður Siggi bonn, f. 10. apríl 1858, d. 27. júní 1911.

II. Barnsfaðir Sigríðar var Björn Kristjánsson vinnumaður í Dölum, f. 1825, d. 19. maí 1891.
Barn þeirra var
2. Andvana fætt meybarn 6. desember 1859.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.