Sigríður Garðarsdóttir (verslunarstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. nóvember 2019 kl. 17:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. nóvember 2019 kl. 17:26 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Sigríður Garðarsdóttir.

Sigríður Garðarsdóttir húsfreyja, verslunarstjóri fæddist 25. janúar 1959 í Eyjum og lést 8. mars 2016 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Foreldrar hennar voru Garðar Gíslason vélvirkjameistari frá Skálholti, f. 22. júní 1931, d. 17. júní 2013, og kona hans Edda Sigrún Svavarsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 1. janúar 1936 í London, d. 29. júlí 2011.

Börn Eddu og Garðars:
1. Svavar Garðarsson vélvirkjameistari, meðeigandi Vélaverkstæðisins Þórs, f. 24. apríl 1954. Kona hans Valdís Stefánsdóttir, látin.
2. Gísli Þór Garðarsson sjómaður, skipstjóri, býr í Mosfellsbæ, f. 17. janúar 1956. Kona hans Elva Ragnarsdóttir.
3. Eggert Garðarsson vélvirkjameistari, meðeigandi Vélaverkstæðisins Þórs, f. 3. febrúar 1957, d. 29. janúar 2016. Kona hans Svava B. Johnsen.
4. Sigríður Garðarsdóttir húsfreyja, verslunarstjóri, f. 25. janúar 1959, d. 8. mars 2016. Maður hennar Hjalti Hávarðsson.
5. Lára Ósk Garðarsdóttir húsfreyja, með verslunarskólapróf, skrifstofustjóri, f. 16. október 1961. Fyrri maður Grétar Þór Eyþórsson. Síðari maður hennar Jósúa Steinar Óskarsson.
6. Garðar Rúnar Garðarsson vélstjóri, meðeigandi Vélaverkstæðisins Þórs, f. 17. nóvember 1962. Kona hans Rinda Rissakorn.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku, bjó með þeim að Heiðarvegi 11, síðan að Illugagötu 50.
Hún vann að fiskvinnslu og síðan í leikskóla, en um tvítugt hóf hún störf hjá ÁTVR, fyrst var hún gjaldkeri, en síðan aðstoðarverslunarstjóri og verslunarstjóri frá 2001.
Þau Hjalti giftu sig 2006, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Búhamri 34.
Sigríður lést 2016.

I. Maður Sigríðar, (1. apríl 2006), er Hjalti Hávarðsson stýrimaður, f. 10. janúar 1957 á Rauðafelli.
Börn þeirra:
1. Hávarður Þór Hjaltason kerfisstjóri í Reykjavík, f. 17. júní 1975. Kona hans Alina Marin Hjaltason.
2. Erna Dögg Hjaltadóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. febrúar 1992. Sambúðarmaður hennar Unnar Óli Ólafsson.
3. Breki Örn Hjaltason vélvirki, f. 2. janúar 1997. Fyrrum sambýliskona hans Amalía Duffield.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.