Sigrún Lilja Kristinsdóttir (Eystri-Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigrún Lilja Kristinsdóttir.

Sigrún Lilja Kristinsdóttir frá Eystri-Löndum, verkakona fæddist þar 29. mars 1921 og lést 5. nóvember 2007.
Foreldrar hennar voru Kristinn Sigurðsson frá Eystri-Löndum, verkamaður, f. 21. apríl 1890 á Löndum, d. 4. mars 1966, og kona hans Oktavía Þórunn Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 23. október 1884 á Efri-Hömrum í Holtum, d. 9. desember 1968.

Börn Oktavíu og Kristins:
1. Ásta Jóhanna húsfreyja, f. 8. ágúst 1916, d. 29. október 2006, gift Garðari Sigurjónssyni veitustjóra, f. 22. október 1918, d. 3. júní 2007.
2. Lilja Kristinsdóttir, f. 7. mars 1918, d. 22. mars 1918.
3. Sigurður Yngvi hafnarvörður, f. 11. júní 1919, d. 8. apríl 2003, kvæntur Guðbjörgu Bergmundsdóttur húsfreyju, f. 16. nóvember 1922, d. 10. október 2014.
4. Sigrún Lilja, f. 29. mars 1921, d. 5. nóvember 2007.
5. Júlía Rósa, f. 1. júlí 1924, d. 29. mars 2001.
Barn Oktavíu og Kristins Ástgeirssonar:
6. Jóhann, f. 9. janúar 1913, d. 13. október 1985. Kona hans Sigríður Hildur Þórðardóttir.

Sigrún Lilja var með foreldrum sínum í æsku og bjó á Eystri-Löndum meðan fært var.
Hún var í vist í Reykjavík og kaupakona í sveit, en lengst vann hún í Netagerð Vestmannaeyja við netaframleiðslu, í Þurrkhúsinu við saltfiskverkun og í Þvottahúsinu. Við Gosið 1973 flutti hún til Reykjavíkur, vann í eldhúsi Landspítalans um skeið. Eftir flutning heim bjó hún á Foldahrauni 40, og vann í Hraunbúðum frá opnun þeirra uns hún lauk störfum vegna aldurs.
Sigrún var ógift og barnlaus.
Hún dvaldi síðast í Hraunbúðum og lést 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.