Sigrún Guðmundsdóttir (matvælafræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Guðmundsdóttir frá Brimhólabraut 13, matvælafræðingur fæddist þar 9. mars 1962.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Kristinn Ólafsson vélstjóri, birgðavörður, f. 23. ágúst 1918, d. 4. mars 2002, og kona hans Guðrún Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 19. júlí 1925, d. 6. ágúst 2021.

Börn Guðrúnar og Guðmundar Kristins:
1. Hjálmar Guðmundsson vélfræðingur í Vestmannaeyjum, f. 14. september 1948 í Bergholti. Kona hans Sveininna Ásta Bjarkadóttir.
2. Ólafur Guðmundsson vélfræðingur, f. 7. nóvember 1952 á Sjúkrahúsinu. Kona hans Lilja Júlíusdóttir, látin. Kona hans Hrefna Guðjónsdóttir.
3. Sigurjón Guðmundsson bankastarfsmaður, f. 15. júní 1954 að Brimhólabraut 13.
4. Guðni Guðmundsson tölvunarfræðingur, f. 28. júní 1959 á Sjúkrahúsinu. Kona hans Þórdís Njarðardóttir.
5. Sigrún Guðmundsdóttir matvælafræðingur í Hafnarfirði, f. 9. mars 1962 að Brimhólabraut 13. Maður hennar Bergur Helgason.

Sigrún varð stúdent í Kvennaskólanum í Rvk 1982, lauk B.Sc-námi í matvælafræði í HÍ 1990.
Hún hefur unnið við lífsvísindi í heilbrigðisgeiranu, síðust 20 ár við svefnrannsóknir og lungnarannsóknir á Lsp.
Sigrún býr í Hafnarfirði.
Þau Bergur giftu sig 1991, eignuðust eitt barn, en skildu.

I. Maður Sigrúnar, (22. júní 1991, skildu 1998), er Bergur Helgason verkfræðingur, framkvæmdastjóri, f. 16. september 1965 í Rvk. Foreldrar hans Helgi Ingiber Gunnarsson tæknifræðingur, deildarstjóri í Hafnarfirði, f. 4. apríl 1928, d. 5. maí 1990, og kona hans Ingveldur Einarsdóttir húsfreyja, leiðbeinandi, f. 15. nóvember 1930.
Barn þeirra:
1. Heiðar Bergsson, vörustjóri, f. 21. mars 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.