Sigrún Árnadóttir (Varmadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. október 2017 kl. 20:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. október 2017 kl. 20:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: 200px|thumb|''Sigrún Árnadóttir. '''Sigrún Árnadóttir''' öryrki frá Varmadal fæddist 25. janúar 1932 og lést 15. janúar 20...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Sigrún Árnadóttir.

Sigrún Árnadóttir öryrki frá Varmadal fæddist 25. janúar 1932 og lést 15. janúar 2004.
Foreldrar hennar voru Árni Magnússon sjómaður í Eyjum, síðar bóndi á Kröggólfsstöðum í Ölfusi og sjómaður í Þorlákshöfn, f. 26. febrúar 1902 að Steinum u. Eyjafjöllum, d. 1. október 1961 í Þorlákshöfn, og kona hans Helga Sveinsdóttir húsfreyja og bóndi, f. 10. ágúst 1900 í Framnesi á Eyrarbakka, d. 2. ágúst 1974 í Reykjavík .

Börn Helgu og Árna voru:
1. Sigurður Kristján Árnason húsasmíðameistari, listmálari, f. 20. september 1925 á Bergstöðum.
2. Ragnar Guðbjartur Árnason verkamaður í Þorlákshöfn, f. 24. september 1926 á Bergstöðum, d. 31. desember 2004.
3. Magnús Sveinberg Árnason, f. 17. apríl 1929 í Langa-Hvammi, (Magnús Sveinbjörn, f. 24. apríl, segir Magnea systir hans), d. 16. febrúar 1930.
4. Magnea Sveinbjörg Árnadóttir húsfreyja, ættfræðingur, f. 12. september 1930 í Skálanesi.
5. Sigrún Árnadóttir öryrki, f. 25. janúar 1932 í Varmadal, d. 15. janúar 2004.
6. Jónína Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1935 á Hásteinsvegi 17, d. 7. desember 2009.
7. Ragnhildur Árnadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 6. ágúst 1938 í Reykjavík, d. 14. janúar 2013.

Sigrún var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim í Skólavegi 24, (Varmadal) í lok ársins og enn 1934, á Hásteinsvegi 17 (Fjósinu) 1935.
Hún fluttist með þeim til Reykjavíkur 1937.
Sigrún var öryrki frá fæðingu, ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.