„Sigríður Skaftadóttir (Lyngfelli)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Sigríður Skaftadóttir (Lyngfelli)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 6. október 2020 kl. 17:12

Sigríður Skaftadóttir.

Sigríður Skaftadóttir frá Suður-Fossi í Mýrdal, húsfreyja, fæddist 1. maí 1901 á Norður-Götum þar og lést 31. júlí 1939.
Faðir hennar var Skafti bóndi á Suður-Fossi, f. 2. janúar 1874 á Norður-Götum þar, d. 17. júní 1924 á Suður-Fossi, Gíslason bónda, síðast á Norður-Götum, f. í Mýrdal, skírður 25. júlí 1827, Einarssonar bónda lengst í Þórisholti í Mýrdal, f. 7. desember 1796 í Berjaneskoti u. Eyjafjöllum, d. 29. júní 1879 í Þórisholti, Jóhannssonar, og konu Einars, Ragnhildar Jónsdóttur húsfreyju, yfirsetukonu, f. 1791 á Höfðabrekku, d. 2. júlí 1879 í Þórisholti.
Kona Gísla Einarssonar á Norður-Götum og móðir Skafta á Suður-Fossi var Sigríður húsfreyja, f. 22. apríl 1830 á Ásólfsskála u. Eyjafjöllum, d. 28. október 1893 á Norður-Götum, Tómasdóttir smiðs á Ásólfsskála, síðar bónda og smiðs í Varmahlíð u. Eyjafjöllum, f. 8. júlí 1790, d. 29. júní 1854, Þórðarsonar, og konu Tómasar, Margrétar húsfreyju, f. 1796, Jónsdóttur.
Sigríður var móðir Gunnvarar Guðmundsdóttur fósturmóður Íseyjar Skaftadóttur.

Fyrri kona Skafta Gíslasonar og móðir Sigríðar var Margrét húsfreyja, f. 27. apríl 1877 í Aurgötu u. Eyjafjöllum, d. 3. ágúst 1912 á Suður-Fossi, Jónsdóttir vinnumanns, lausamanns og síðar járnsmiðs á Bergi, f. 9. desember 1850 í Vallnatúni u. Eyjafjöllum, d. 29. maí 1917, Guðmundssonar bónda í Vallnatúni, f. 12. ágúst 1816, d. 29. maí 1917, Gíslasonar, og konu Guðmundar Gíslasonar, Margrétar húsfreyju og yfirsetukonu, f. 14. maí 1822, d. 29. desember 1908, Jónsdóttur.
Móðir Margrétar Jónsdóttur og barnsmóðir Jóns Guðmundssonar á Bergi var Sigurlaug vinnukona víða u. Eyjafjöllum og í V-Skaftafellssýslu, f. 14. janúar 1857, d. 2. september 1899, Þorleifsdóttir bónda, síðast í Jórvík (Jórvíkurhryggjum) í Álftaveri, f. 18. október 1817 í Mörtungu á Síðu, d. 18. júní 1902 á Brekkum í Mýrdal, Eyjólfssonar bónda, síðast í Mörtungu, f. 1774, d. 7. janúar 1819 í Mörtungu, Þórarinssonar bónda í Mörtungu, f. 1742, d. 8. júlí 1823 í Skál á Síðu, Ísleikssonar, og konu Þórarins, Þóru húsfreyju, f. 1736, d. 7. maí 1819, Eyjólfsdóttur.
Móðir Þorleifs í Jórvík og kona Eyjólfs í Mörtungu var Anna húsfreyja, f. 1776, d. 12. febrúar 1829 í Mörtungu, Oddsdóttir bónda, meðhjálpara og hreppstjóra lengst á Seglbúðum í Landbroti, f. 1741, d. 14. október 1797 í Eystra-Hrauni þar, Bjarnasonar, og konu Odds, Guðlaugar húsfreyju, f. 1750, d. 24. maí 1803 á Eystra-Hrauni, Björnsdóttur.

Móðir Sigurlaugar í Hraunkoti og kona Þorleifs í Jórvíkurhrygg var Kristín yngri, húsfreyja, f. 29. október 1826 á Flögu í Skaftártungu, d. 16. júní 1890 á Ketilsstöðum í Mýrdal, Vigfúsdóttir bónda á Svartanúpi og Flögu í Skaftártungu, f. 1797 á Borgarfelli, drukknaði í Hólmsá 3. nóvember 1863, Bótólfssonar bónda á Borgarfelli í Skaftártungu, f. 1752, d. 1803 á Borgarfelli, Jónssonar, og konu Bótólfs, Kristínar húsfreyju, f. 1765 á Ljótarstöðum í Skaftártungu, d. 7. mars 1817 í Gröf þar, Ísleifsdóttur.
Móðir Kristínar í Jórvíkurhrygg og fyrri kona Vigfúsar á Svartanúpi var Guðrún húsfreyja, f. 1792 í Hrífunesi í Skaftártungu, d. 10. febrúar 1849 á Flögu þar, Árnadóttir bónda í Hrífunesi í Skaftártungu, f. 1741 á Herjólfsstöðum í Álftaveri, d. 16. júní 1811 í Hrífunesi, Árnasonar, og konu Árna í Hrífunesi, Kristínar húsfreyju, f. 1758, d. 17. júní 1811, Sigurðardóttur.


ctr


Foreldrar Sigríðar og börn og síðari kona Skafta og börn þeirra.
Sigríður er nr. 1. í 2. röð ofanfrá talið.


Móðurfaðir Sigríðar var
1. Jón Guðmundsson verkamaður, járnsmiður á Bergi, f. 9. desember 1850 í Vallnatúni u. Eyjafjöllum, d. 29. maí 1917.
Börn Margrétar dóttur hans í Eyjum voru:
1. Sigríður Skaftadóttir húsfreyja, kona Guðlaugs Br. Jónssonar kaupmanns.
2. Ragnhildur Skaftadóttir, f. 8. febrúar 1904, d. 12. október 1939.
3. Kristín Skaftadóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1906, d. 10. apríl 1992, kona Runólfs Jóhannssonar formanns og skipasmíðameistara, skipaeftirlitsmanns í Ólafsvík við Hilmisgötu, f. 4. október 1898, d. 4. ágúst 1969.
4. Ísey Skaftadóttir húsfreyja, f. 13. mars 1911, d. 6. júní 1987, kona Sigurmundar Runólfssonar verkstjóra, f. 4. ágúst 1904, d. 16. febrúar 1974.
5. Margrét Skaftadóttir Scheving húsfreyja, f. 29. júlí 1912, d. 2. nóvember 2009, kona Sigurðar Scheving bankamanns, f. 9. apríl 1910, d. 10. nóvember 1977.

Sigríður var með foreldrum sínum í fyrstu, en móðir hennar lést, er Sigríður var á tólfta árinu. Hún var með föður sínum og sambýliskonu hans Guðbjörgu Nikulásdóttur til 1920.
Hún flutti til Eyja 1920, var bústýra Guðlaugs frá því ári. Þau eignuðust eitt barn 1921, bjuggu í Tungu, í Gvendarhúsi, síðan í Lyngfelli.
Sigríður varð sjúklingur og dvaldi á sjúkrahúsi. Þau fluttu heimili sitt til Reykjavíkur 1939 og Sigríður lést á því ári.
Guðlaugur lést 1966.

I. Sambýlismaður Sigríðar var Guðlaugur Br. Jónsson kaupmaður, útgerðarmaður, síðar framkvæmdastjóri í Reykjavík, heildsali, f. 29. janúar 1895 í Reynisdal í Mýrdal, d. 2. október 1966.
Barn þeirra:
1. Þorgrímur Guðlaugsson heildsali í Reykjavík, f. 27. september 1921, d. 12. mars 1976.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.