Sigríður Sigurðardóttir (Vatnsdal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. janúar 2020 kl. 18:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2020 kl. 18:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal, húsfreyja fæddist þar 26. ágúst 1932 og lést 2. maí 1992.
Foreldrar hennar voru Sigurður Högnason frá Vatnsdal, verkamaður, f. 4. október 1897 á Norðfirði, d. 30. ágúst 1951, og kona hans Ingibjörg Ólafsdóttir húsfreyja, f. 28. mars 1907 í Vík í Mýrdal, d. 6. janúar 1989.

Börn Ingibjargar og Sigurðar:
1. Ásta Hildur Sigurðardóttir, f. 11. janúar 1928 í Vatnsdal, d. 4. nóvember 2014.
2. Högni Sigurðsson, f. 19. janúar 1929, d. 11. september 2018.
3. Ólafur Ragnar Sigurðsson, f. 3. mars 1931 í Vatnsdal.
4. Sigríður Sigurðardóttir, f. 26. ágúst 1932 í Vatnsdal, d. 2. maí 1992.
5. Kristín Ester Sigurðardóttir, f. 5. febrúar 1939 í Vatnsdal, d. 11. maí 1988.
6. Hulda Sigurbjörg Sigurðardóttir, f. 27. ágúst 1947 í Vatnsdal.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku.
Hún tók gildan þátt í íþróttum, handbolta og frjálsum íþróttum, var Íslandsmeistari í kúluvarpi 1951.
Þau Kolbeinn giftu sig 1955, eignuðust sjö börn, þar taldir þríburar.
Þau bjuggu á Hvoli við Urðaveg 17, skildu 1974.
Þau Einar Birgir giftu sig 1978.
Sigríður bjó síðast á Illuggötu 79. Hún lést 1992.

Sigríður var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (31. desember 1955), er Kolbeinn Oddur Sigurjónsson sjómaður, f. 12. september 1932.
Börn þeirra:
1. Harpa Kolbeinsdóttir, f. 10. febrúar 1954 í Vatnsdal.
2. Anna Ísfold Kolbeinsdóttir, f. 24. nóvember 1955, þríburi.
3. Marý Ólöf Kolbeinsdóttir, f. 24. nóvember 1955, þríburi.
4. Guðrún Fjóla Kolbeinsdóttir, f. 24. nóvember 1955, þríburi.
5. Ingibjörg Sigríður Kolbeinsdóttir, f. 4. desember 1957.
6. Elfa Sigurjóna Kolbeinsdóttir, f. 17. maí 1963.
7. Kolbeinn Freyr Kolbeinsson, f. 10. mars 1973.

II. Síðari maður Sigríðar, (31. desember 1978), er Einar Birgir Sigurjónsson frá Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 5. maí 1933.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.