„Sigríður Sigurðardóttir (Búlandi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 13: Lína 13:
3. [[Júlía Sigurðardóttir (Dvergasteini)|Júlía Sigurðardóttir]] húsfreyja í [[Dvergasteinn|Dvergasteini]], f.  7. júlí 1886, d. 22. júlí 1979.

3. [[Júlía Sigurðardóttir (Dvergasteini)|Júlía Sigurðardóttir]] húsfreyja í [[Dvergasteinn|Dvergasteini]], f.  7. júlí 1886, d. 22. júlí 1979.

4.  [[Sigríður Sigurðardóttir (Búlandi)|Sigríður Sigurðardóttir]] húsfreyja á [[Búland|Búlandi, Skólavegi 41]], síðast í Reykjavík, f. 27. september 1891, d. 22. nóvember 1981.

4.  [[Sigríður Sigurðardóttir (Búlandi)|Sigríður Sigurðardóttir]] húsfreyja á [[Búland|Búlandi, Skólavegi 41]], síðast í Reykjavík, f. 27. september 1891, d. 22. nóvember 1981.

5. [[Sigurbjörn Sigurðsson]] bóndi á Syðstu-Grund, síðar í Eyjum, f. 15. september 1896, d. 29. mars 1971.

5. [[Sigurbjörn Sigurðsson  (Syðstu-Grund)|Sigurbjörn Sigurðsson]] bóndi á Syðstu-Grund, f. 15. september 1896, d. 29. mars 1971.

Sigríður var með foreldrum sínum og systkinum á Syðstu-Grund 1901.

Sigríður var með foreldrum sínum og systkinum á Syðstu-Grund 1901.

Núverandi breyting frá og með 11. nóvember 2019 kl. 20:59

Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja á Búlandi.

Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja á Búlandi fæddist 27. september 1891 á Syðstu-Grund u. Eyjafjöllum og lést 22. nóvember 1981.
Faðir Sigríðar var Sigurður bóndi á Syðstu-Grund u. Eyjafjöllum, f. 1. október 1852 í Stóradalssókn u. Eyjafjöllum, d. 29. febrúar 1936, Eyjólfsson bónda í Miðmörk, f. 1825, d. 5. febrúar 1899, Eyjólfssonar bónda á Ytri-Lyngum í Meðallandi, síðar á Austurlandi, f. 1797, d. 24. janúar 1867, Marteinssonar, og konu Eyjólfs Marteinssonar, Þorgerðar húsfreyju, f. 26. ágúst 1799, Jónsdóttur.
Kona Eyjólfs Eyjólfssonar og móðir Sigurðar bónda á Syðstu-Grund var Þorbjörg frá Háagarði, síðar húsfreyja í Mið-Mörk u. V-Eyjafjöllum, f. 20. ágúst 1832, d. 24. október 1916, Sigurðar bónda í Háagarði, f. 28. mars 1794, d. 10. febrúar 1833, Magnússonar, og konu hans Bjargar húsfreyju, f. 10. mars 1788, d. 6. janúar 1853, Brynjólfsdóttur.

Móðir Sigríðar og kona Sigurðar Eyjólfssonar var Sigurbjörg húsfreyja, f. 17. desember 1851, d. 14. maí 1942, Guðmundsdóttir bónda í Vallnatúni og Syðstugrundarhjáleigu, f. 12. ágúst 1816, d. 5. nóvember 1886, Gíslasonar bónda í Bjóluhjáleigu í Holtum, Rang, f. 14. maí 1786, d. 2. maí 1858, Gíslasonar, og konu Gísla Gíslasonar, Gunnhildar húsfreyju, skírð 25. júlí 1792, d. 24. september 1848, Þorkelsdóttur.
Móðir Sigurbjargar Guðmundsdóttur og kona Guðmundar Gíslasonar var Margrét húsfreyja og yfirsetukona, f. 14. maí 1822, d. 29. desember 1908, Jónsdóttir bónda í Vallnatúni, f. 17. ágúst 1788, d. 30. mars 1855, Einarssonar, og konu Jóns Einarssonar, Arnbjargar húsfreyju, f. 20. ágúst 1790 í Vallnatúni, d. 16. apríl 1852, Auðunsdóttur.

Börn Sigurðar Eyjólfssonar og Sigurbjargar Guðmundsdóttur,- í Eyjum:
1. Margrét Sigurðardóttir húsfreyja á Þinghól, f. 18. júlí 1880, d. 6. janúar 1970.
2. Eyjólfur Sigurðsson skipstjóri, trésmiður í Laugardal, f. 25. febrúar 1885, d. 31. desember 1957.
3. Júlía Sigurðardóttir húsfreyja í Dvergasteini, f. 7. júlí 1886, d. 22. júlí 1979.
4. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja á Búlandi, Skólavegi 41, síðast í Reykjavík, f. 27. september 1891, d. 22. nóvember 1981.
5. Sigurbjörn Sigurðsson bóndi á Syðstu-Grund, f. 15. september 1896, d. 29. mars 1971.

Sigríður var með foreldrum sínum og systkinum á Syðstu-Grund 1901.
Hún var hjú á Syðri-Kvíhólma u. Eyjafjöllum 1910.
Hún fluttist til Norðfjarðar, kynntist Sigurði þar, hélt til Eyja 1911, var vinnukona á Hnausum hjá Margréti systur sinni 1912 og 1913.
Sigurður fluttist frá Miðkrika til Eyja 1914 og þau bjuggu í Fagurhól 1914 og 1915, giftu sig 1915.
Sigríður fæddi Sigurð hjá systur sinni á Hnausum 1915. Þar voru þau Sigurður 1916 og þar fæddist Elín 1917.
Sigríður var á Sæbergi við fæðingu Sigurbjargar Svövu í maí 1918, en þau voru í Vinaminni í lok ársins.
Þau misstu Sigurbjörgu Svövu í Vinaminni í mars 1919.
Sigríður ól Guðmundu Dagmar í Heklu við Hásteinsveg í maí 1919. Þau byggðu Búland og voru komin þangað í lok árs 1920 og bjuggu þar síðan.
Sigurður lést 1959. Sigríður bjó áfram á Búlandi, bjó þar ein 1972.
Hún bjó á Kambsvegi 10 í Reykjavík við andlát 1981.

I. Maður Sigríðar, (15. maí 1915), var Sigurður Bjarnason verkamaður, múrari, f. 28. október 1884 í Garðsauka í Hvolhreppi, Rang., d. 12. apríl 1959.

ctr
Börn Sigríðar og Sigurðar á Búlandi.

Börn þeirra:
1. Sigurður Sigurðsson vélstjóri, verslunarmaður, síðast í Reykjavík, f. 23. janúar 1915 á Hnausum, d. 5. mars 1994.
2. Elín Sigurðardóttir húsfreyja, saumakona í Reykjavík, f. 11. mars 1917 á Hnausum, d. 16. janúar 2015.
3. Sigurbjörg Svava Sigurðardóttir, f. 29. maí 1918 á Sæbergi, d. 4. mars 1919 í Vinaminni.
4. Guðmunda Dagmar Sigurðardóttir húsfreyja, f. 23. desember 1919 í Heklu, d. 1. maí 2010.
5. Óskar Jón Árnason Sigurðsson bifreiðastjóri, verkamaður, síðast í Hafnarfirði, f. 2. febrúar 1921 á Búlandi, d. 19. október 1998.
6. Sigríður Sigurðardóttir yngri, húsfreyja, verslunarstjóri í Reykjavík, f. 8. febrúar 1923 á Búlandi, d. 8. janúar 2009.
7. Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1924 á Búlandi, d. 31. janúar 2011.
8. Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, verkstjóri, f. 27. júní 1925 á Búlandi, d. 16. ágúst 2017.
9. Emil Sigurðsson bifreiðastjóri, bifvélavirki, f. 3. desember 1927 á Búlandi.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.