Sigríður Ragna Júlíusdóttir (Stafholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Sigríður Ragna Júlíusdóttir.

Sigríður Ragna Júlíusdóttir frá Stafholti, húsfreyja, saumakona, kaupkona fæddist 28. janúar 1926 í Stafholti og lést 25. júní 2008.
Foreldrar hennar voru Júlíus Jónsson múrarameistari, f. 31. júlí 1895, d. 4. september 1978, og fyrri kona hans Sigurveig Björnsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1891, d. 27. september 1934.

Börn Sigurveigar og Júlíusar:
1. Björn Sigurður Júlíusson læknir, f. 1. október 1921, d. 6. mars 1995.
2. Helga Sigurbjörg Júlíusdóttir húsfreyja, síðar í Kópavogi, f. 26. júní 1923, d.29. mars 2019.
3. Sigríður Ragna Júlíusdóttir húsfreyja, síðar í Kópavogi, f. 28. janúar 1926, d. 25. júní 2008.
4. Jóna Margrét Júlíusdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 2. febrúar 1927.
5. Hafsteinn Júlíusson múrarameistari, síðar í Kópavogi, f. 8. júní 1928, d. 15. febrúar 1990.
6. Garðar Júlíusson rafvirkjameistari, síðar í Kópavogi, f. 10. nóvember 1932, d. 26. ágúst 1988.

Börn Júlíusar og síðari konu hans Gíslínu Sigríðar Helgu Einardóttur:
7. Stúlka, f. 21. nóvember 1938, d. sama dag.
8. Sigurveig Júlíusdóttir húsfreyja í Mosfellsbæ, f. 27. desember 1940 í Stafholti.

Sigríður var með foreldrum sínum í fyrstu, en móðir hennar dó, er Sigríður var á níunda árinu.
Þau Sveinn giftu sig 1948, eignuðust sex börn, en misstu eitt þeirra þriggja mánaða gamalt.
Þau bjuggu á Víðisvegi 7C til Goss.
Sigríður Ragna rak eigin saumastofu í Eyjum. Við gosið fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur og síðan á Reynigrund í Kópavogi.
Þá hóf Sigríður störf hjá Gráfeldi, en þegar hann lagði upp laupana stofnaði Sigríður og samstarfskonur hennar eigið fyrirtæki, framleiddu skinn- og loðfatnað og stofnuðu verslun.
Sigríður fluttist að síðustu á hjúkrunarheimilið í Víðinesi.
Sveinn Sverrir lést 2004 og Sigríður Ragna 2008.

I. Maður Sigríðar Rögnu, (17. janúar 1948), var Sveinn Sverrir Sveinsson sjómaður, múrari, verkamaður, síðar starfsmaður Viðlagasjóðs og Kópavogsbæjar, f. 15. október 1924 Bakkagerði á Borgarfirði eystra, d. 13. maí 2004.
Börn þeirra:
1. Júlíus Athur Sveinsson verkamaður, f. 25. júní 1944. Kona hans Freydís Fannbergsdóttir, látin.
2. Sveinborg Sveinsdóttir, f. 4. janúar 1946, d. 7. apríl 1946.
3. Sveinborg Helga Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 13. júní 1948, d. 13. mars 2004. Maður hennar Finnbogi Jónsson, látinn.
4. Ragnar Sveinsson húsasmíðameistari í Mosfellsbæ, f. 9. júlí 1955. Kona hans Gunnhildur M. Sæmundsdóttir.
5. Sveinn Sigurður Sveinsson smiður í Reykjavík, f. 21. apríl 1957. Kona hans Margrét J. Bragadóttir.
6. Birgir Sveinsson húsasmiður í Reykjavík, f. 6. febrúar 1959. Kona hans Steinunn Ingibjörg Gísladóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.