Sigríður Nikulásdóttir (Bræðraborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. mars 2018 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. mars 2018 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Nikulásdóttir frá Mið-Grund u. Eyjafjöllum, húsfreyja í Bræðraborg fæddist 6. september 1879 á Mið-Grund u. Eyjafjöllum og lést 4. ágúst 1917.
Foreldrar hennar voru Nikulás Eiríksson bóndi, þá vinnumaður í Stóru-Mörk u. V-Eyjafjöllum, f. 2. mars 1853, d. 11. ágúst 1880, og Jóhanna Jónsdóttir, þá vinnukona í Stóru-Mörk, síðar húsfreyja á Mið-Grund, f. 20. maí 1858, d. 7. október 1914.

Faðir Jóhönnu var Jón Gunnsteinsson bóndi í Vesturholtum u. Eyjafjöllum, albróðir Jóns Gunnsteinssonar í Dölum.

Sigríður var tökubarn í Efraholti u. Eyjafjöllum 1880, hjá móður sinni og stjúpa á Mið-Grund 1890 og 1901.
Hún fluttist til Eyja 1906, giftist Guðjóni á því ári og bjó með honum á Landamótum 1906, á Felli 1907, bjuggu í Bræðraborg 1908 og síðan. Þau eignuðust tvö börn.
Sigríður lést 1917. Guðjón lést 1963.

I. Maður Sigríðar, (16. nóvember 1906), var Guðjón Jónsson skipstjóri, útgerðarmaður, síðar á Heiði, f. 18. maí 1882, d. 22. mars 1963.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Nikólína Guðjónsdóttir, f. 19. ágúst 1909, d. 19. apríl 1976.
2. Sigurjón Guðjónsson, f. 10. október 1911 í Bræðraborg, d. 6. ágúst 1921.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.