Sigríður Jósafatsdóttir (Ártúni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. apríl 2019 kl. 19:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. apríl 2019 kl. 19:22 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Björg Jósafatsdóttir frá Ártúni, húsfreyja fæddist 18. október 1912 í Þistilfirði og lést 6. janúar 1977.
Foreldrar hennar voru Jósafat Sigmundur Gíslason úr Aðaldal í S-Þing., bóndi í Fjallalækjarseli í Þistilfirði, bóndi á Flautafelli í Þistilfirði 1901, leigjandi á Hermundarfelli þar 1910, f. 7. maí 1866 í Fjallalækjarseli, d. þar 3. mars 1917, og kona hans Ólöf Jóhanna Sigmundsdóttir frá Möl í N-Þing., húsfreyja, f. 28. febrúar 1874 á Valþjófsstöðum í Núpasveit, N-Þing., d. 28. nóvember 1940 á Ytri-Brekkum á Langanesi.

Sigríður Björg missti föður sinn, er hún var á fimmta árinu. Hún var tökubarn í Holti í Þistilfirði 1920, var vinnukona, m.a. í Hvammi í Þistilfirði.
Hún nam við Húsmæðraskólann á Hallormsstað einn vetur um 1940, en fluttist þá til Eyja.
Þau Alfreð bjuggu í Bræðraborg við fæðingu Guðna 1942. Þau bjuggu á Sólheimum 1945 og enn 1949, en voru komin í Ártún, Vesturveg 20 1953 og bjuggu þar til dánardægurs.
Sigríður Björg lést 1977 og Alfreð 1978.

I. Maður Sigríðar Bjargar var Alfreð Bachmann Þorgrímsson vélstjóri, afgreiðslumaður, f. 23. nóvember 1914, d. 25. ágúst 1978.
Börn þeirra:
1. Guðni Ágúst Alfreðsson örverufræðingur, prófessor við H.Í, f. 6. mars 1942 í Bræðraborg. Kona hans er Guðrún Sigríður Þórarinsdóttir.
2. Alda Alfreðsdóttir húsfreyja á Selfossi, nam við Póst- og símaskólann, fulltrúi og gjaldkeri hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, f. 12. apríl 1956 í Ártúni. Maður hennar er Ragnar Ólafsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.