Sigríður Jónsdóttir fyrri (Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Norðurgarði og Stóra-Gerði fæddist 15. júní 1795 í Keldudal í Mýrdal og lést 17. júlí 1862 í Árnanesi í Nesjum, A-Skaft.
Foreldrar hennar voru Jón Nikulásson bóndi í Keldudal, skírður 5. desember 1756, d. 29. maí 1825, og kona hans Bergljót Einarsdóttir húsfreyja, f. 1754, d. 4. júlí 1831.

Sigríður var með foreldrum sínum 1801 og enn 1818. Þá fór hún að Skíðbakkahjáleigu í A-Landeyjum.
Þau Jón bjuggu í A-Landeyjum 1818-1820.
Þau voru komin að Norðurgarði 1820 og voru þar bændur 1821 og 1822, síðan í Gerði 1823 og 1824 til ársins 1825.
Þau komu að Engigarði í Mýrdal 1825, bjuggu þar til 1832, í Görðum þar 1832-1836, á Söndum í Meðallandi 1836-1837, á Hofi í Öræfum 1837 og enn 1845. Sigríður var þar enn húsfreyja 1850 með börnin Snjólaugu 20 ára, Þorlák 19 ára og Meyvant 8 ára, en Jón maður hennar var kominn austur á land og var þar vinnumaður og smiður í Höfða í Vallanessókn.
1855 var Sigríður skilin kona, stóð fyrir búi í hjáleigu frá Skálafelli í A-Skaftafellssýslu 1855. Þar voru með henni Una dóttir hennar 19 ára og Meyvant sonur hennar 15 ára.
Hún var að lokum próventukona í Árnanesi og lést þar 1862.

Maður Sigríðar, (24. maí 1818), var Jón Höskuldsson bóndi, nefndur „Landeyingur“, f. 18. september 1790, d. 14. mars 1877. Þau skildu samvistir fyrir 1850.
Börn þeirra hér:
1. Höskuldur Jónsson, f. 8. mars 1820, d. 3. september 1821 í Norðurgarði.
2. Meyvant Jónsson, f. 5. október 1822 í Norðurgarði, d. 11. október 1822 í Norðurgarði úr „sinadráttarsýki“, mun vera stífkrampi, ginklofi.
3. Sveinn Jónsson, f. 21. desember 1823 í Gerði, d. 1. janúar 1824 í Gerði úr ginklofa.
Síðari börn þeirra fædd uppi á Landi:
4. Bergljót Jónsdóttir, f. 20. júní 1825, d. 27. júní 1825.
5. Guðbjörg Jónsdóttir, f. 18. janúar 1827, d. 24. janúar 1827.
6. Meyvant Jónsson, f. 29. október 1828, d. 5. nóvember 1828.
7. Snjólaug Jónsdóttir ljósmóðir í Skálafellsseli í Suðursveit, f. 18. ágúst 1830, d. 29. október 1893.
8. Þorlákur Jónsson bóndi á Hofi í Öræfum, f. 1. janúar 1832, d. 17. nóvember 1895.
9. Guðbjörg Jónsdóttir, f. 6. janúar 1834, d. 13. janúar 1834.
10. María Jónsdóttir, f. 16. febrúar 1836, dó líklega ung.
11. Una Jónsdóttir vinnukona í Skálafellshjáleigu, f. 16. febrúar 1836, d. 2. apríl 1856.
12. Eymundur Jónsson, (tók sér nafnið Meyvant), bóndi í Dilksnesi í Hornafirði, f. 22. desember 1840, d. 1. apríl 1927.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.