„Sigríður Jónsdóttir (Árdal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Sigríður Jónsdóttir''' frá Steig í Mýrdal, húsfreyja í Árdal við Hilmisgötu 5 fæddist 16. september 1912 í Steig og lést 24. janúar 2003 á Hrafnistu...)
 
m (Verndaði „Sigríður Jónsdóttir (Árdal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 3. apríl 2020 kl. 17:54

Sigríður Jónsdóttir frá Steig í Mýrdal, húsfreyja í Árdal við Hilmisgötu 5 fæddist 16. september 1912 í Steig og lést 24. janúar 2003 á Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Jón Þorsteinsson bóndi í Neðri-Dal og í Steig í Mýrdal, f. 13. nóvember 1867, d. 28. júlí 1921, og kona hans Sigríður Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 30. janúar 1872, d. 16. maí 1952 í Eyjum.

Börn Sigríðar og Jóns í Eyjum:
1. Þorsteinn Jónsson lausamaður á Setbergi 1934 og 1940, sjúklingur, f. 12. ágúst 1894 á Mið-Hvoli í Mýrdal, d. 4. maí 1980.
2. Bjarni Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 30. júní 1896 í Neðri-Dal í Mýrdal, d. 21. febrúar 1964.
3. Kristinn Jónsson í (Hvíld), Reynisholti, verslunarmaður á Tanganum, f. 29. nóvember 1898 í Neðri-Dal í Mýrdal, d. 8. júní 1946.
4. Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Sóleyjartungu við Brekastíg 21, f. 18. febrúar 1908 í Steig í Mýrdal, d. 9. mars 1997.
5. Jón Jónsson véstjóri, verkamaður, f. 20. júlí 1909 í Steig, d. 30. september 1962.
6. Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Árdal við Hilmisgötu 5, f. 16. september 1912 í Steig, d. 24. janúar 2003.

Sigríður var með foreldrum sínum í Steig, en faðir hennar lést, er hún var á níunda árinu.
Hún var með móður sinni í Vík 1921-1927, en þá fluttust þær til Eyja.
Sigríður bjó með móður sinni í Reynisholti við Faxastíg 12 1927, með henni á Vestmannabraut 72 1930, á Skólavegi 25 1934.
Hún vann í bókabúð Þorsteins Johnson og síðar í Bókahúsinu í Reykjavík.
Þau Óskar fluttust til Reykjavíkur í Gosinu og stofnuðu Bókahúsið að Laugavegi 178.
Þau Óskar giftu sig 1935, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Viðey, síðar í Árdal við Hilmisgötu 5, en skildu 1974.
Sigríður dvaldi að síðustu á Hrafnistu í Reykjavík. Hún lést 2003.

I. Maður Sigríðar, (28. desember 1935), var Óskar Þorsteinsson skipstjóri, bóksali, f. 15. júlí 1915, d. 28. júní 1999.
Börn þeirra:
1. Hrönn Karólína Óskarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 21. janúar 1936 í Viðey, d. 29. júní 2012.
2. Þorsteinn Óskarsson, f. 23. júní 1939, d. 1. júlí 1939.
3. Margrét Óskarsdóttir húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 7. janúar 1941 í Árdal.
4. Þorsteinn Óskarsson sjómaður í Reykjavík, f. 14. nóvember 1944 í Árdal.
5. Kristinn Óskarsson starfsmaður í Álverinu í Straumsvík, f. 9. september 1946 í Árdal.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 23. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.