Sigríður Jónatansdóttir (Stórhöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. janúar 2018 kl. 22:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. janúar 2018 kl. 22:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Jónatansdóttir húsfreyja frá Stórhöfða fæddist 6. nóvember 1903 og lést 16. mars 1994, síðast búsett á Seltjarnarnesi.
Foreldrar hennar voru Jónatan Jónsson vitavörður í Stórhöfða, f. 3. október 1857, d. 10. apríl 1939, og kona hans Guðfinna Þórðardóttir húsfreyja, f. 4. september 1875, d. 30. nóvember 1959.

Sigríður var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Lárus Georg Árnason bifreiðarstjóri á Búastöðum, f. 11. maí 1896, d. 15. febrúar 1967.
Þau Lárus skildu samvistir eftir stutt hjónaband, barnlaus.

II. Sigríður giftist síðar Guðmundi Steinssyni járnsmiði, f. 27. desember 1904, d. 20. nóvember 1993. Þau bjuggu á Vestri-Löndum, Landagötu 11, en fluttust á Seltjarnarnes um 1960. Þau voru barnlaus.

Barn Sigríðar og kjörbarn Guðmundar var
1. Guðfinna Jónatans Guðmundsdóttir, f. 29. október 1941. Hún var dóttir Valdimars Tómassonar, f. 23. febrúar 1904, d. 15. ágúst 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.