Sigríður Ingibjörg Guðmundsdóttir (Sjólyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 13:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 13:59 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Sjólyst fæddist 17. janúar 1878 og lést 19. ágúst 1966.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson skipherra í Sjólyst, f. 31. október 1848, d. 23. ágúst 1882, og kona hans Auðbjörg Bjarnadóttir húsfreyja, f. 19. júní 1942, d. 15. janúar 1921.

Systkini hennar voru:
1. Helgi Guðmundur Guðmundsson, f. 20. ágúst 1869, d. 8. apríl 1937. Hann fór til Vesturheims.
2. Bjarni Guðmundsson, f. 9. júlí 1873, d. 11. júlí 1896. Hann fór til Vesturheims.
3. Einar Guðmundsson, f. 23. apríl 1876, fór til Vesturheims, d. 17. febrúar 1926.
4. Árni Guðmundsson, f. 16. ágúst 1880, fór til Vesturheims, d. 7. febrúar 1923.

Sigríður Ingibjörg fluttist til Utah með fjölskyldu sinni 1882.
Hún lést 1966 í Salt Lake City.

Maður hennar var James Albertson frá Ulsted í Danmörku, f. 14. júlí 1870, d. 1. september 1945.
Börn þeirra voru:
1. Clara Christine, f. 1896.
2. James Goodman, f. 1897, d. 1971.
3. Rebecca Elinor, f. 1900, d. 1976.
4. Sarah Jane, f. 1906, d.1938.
5. Albert Jacob, f. 1908, d. 1908.
6. Clarence Leroy, f. 1915, d. 1967.
7. Douglas Delbert, f. 1918, d. 1936.
8. Óþekkt.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Utah Icelandic Settlement, vefrit.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.