Sigríður Hildibrandsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Sigríður Hildibrandsdóttir vinnukona á Vilborgarstöðum fæddist 6. nóvember 1829 og drukknaði 14. júlí 1864.
Foreldrar hennar voru Hildibrandur Þorsteinsson bóndi á Svínaskála í Reyðarfirði, f. 1802, d. 11. mars 1839 í Hólmasókn á Reyðarfirði, og kona hans Þóra Sveinsdóttir úr Eyjafirði, húsfreyja, f. 11. júlí 1802.

Sigríður var með foreldrum sínum á Svínaskála í æsku. Faðir hennar lést, er hún var á 10. árinu og heimilið leystist upp. Móðir hennar fór í vinnumennsku og Sigríður varð niðursetningur, var á Ytri-Höndlunarstað Örum & Wulfs í Hólmasókn hjá Páli Ísfeld og Gróu Eiríksdóttur 1840, vinnukona á Lambeyri þar 1845, á Fossvöllum á Jökuldal 1850.
Hún eignaðist barn með Þorfinni 1852, var með barninu í Hvammi í Vallanessókn á Héraði 1860.
Hún fluttist úr Öræfum að Vilborgarstöðum 1864 og drukknaði „við Mýrdal“ um sumarið.

I. Barnsfaðir hennar var Þorfinnur Sigfússon klénsmiður í Hofteigi á Jökuldal í N-Múl., járnsmiður á Eskifirði 1852, bóndi á Ásgeirsstöðum á Héraði, f. 19. október 1818 í Hofteigssókn, d. 10. júlí 1860.
Barn þeirra:
1. Lárus Þorfinnsson, f. 23. janúar 1852, var í Hvammi í Vallanessókn 1860, d. 9. desember 1870.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.