Sigríður Brynjólfsdóttir (Hólshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 18:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 18:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Brynjólfsdóttir vinnukona fæddist 29. apríl 1822 í Miðskála u. Eyjafjöllum og lést 4. júlí 1888 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hennar voru Brynjólfur Brynjólfsson bóndi á Vilborgarstöðum og í Miðskála u. Eyjafjöllum, f. 21. febrúar 1791 í Skipagerði í V-Landeyjum, og kona hans Guðný Erlendsdóttir yngri, húsfreyja, f. 3. desember 1788 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 18. júní 1844 í Efsta-Koti þar.

Sigríður var 13 ára fósturbarn í Klömbru u. Eyjafjöllum 1835, 18 ára „tökubarn“ þar 1840, vinnukona í Stóru-Mörk 1845 og 1850, í Ásólfsskála með Guðrúnu hjá sér 1855. Hún var vinnukona í Brennu u. Eyjafjöllum 1860 með barn sitt Sigurð Þorleifsson 1 árs hjá sér. 1880 var hún í Helgahjalli, móðir Sigurðar Þorleifssonar húsmanns og sjómanns 20 ára.
Hún fluttist til Sigurðar sonar síns í Utah 1886 frá Hólshúsi og lést þar 1888.

I. Barnsfaðir hennar var Jón Jónsson, vinnumaður hjá foreldrum sínumi í Stóru-Mörk 1850, f. 12. júlí 1821.
Barn þeirra var
Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Helgahjalli, f. 24. júlí 1849, d. 8. maí 1931 í Utah.

II. Barnsfaðir hennar var Jakob Sigurðsson, f. 14. júlí 1835 í Krókatúni u. Eyjafjöllum.
Barn þeirra var
2. Sigríður Jakobsdóttir húsfreyja á Giljum í Mýrdal, f. 21. október 1853 í Bakkakoti u. Eyjafjöllum, d. 26. júní 1941.

III. Barnsfaðir Sigríðar var Þorleifur Eyjólfsson, f. 1. febrúar 1835 í Aurgötu u. Eyjafjöllum, d. 16. október 1911.
Barn þeirra var
3. Sigurður Þorleifsson húsameistari í Utah, f. 20. september 1859 í Brennu u. Eyjafjöllum, d. 6. mars 1922 í Utah.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Utah Icelandic Settlement.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.