Sigríður Þóroddsdóttir (Ekru)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigríður Þóroddsdóttir.

Sigríður Þóroddsdóttir húsfreyja, talsímakona, skrifstofumaður fæddist 8. september 1943 á Ekru við Urðaveg 20 og lést 6. desember 2023.
Foreldrar hennar voru Þóroddur Ólafsson frá Dalseli u. V-Eyjafjöllum, vélstjóri, f. 1. júní 1900, d. 16. maí 1989, og kona hans Bjargey Steingrímsdóttir frá Akureyri, húsfreyja, saumakona, f. 13. ágúst 1909, d. 29. október 1986.

Börn Bjargeyjar og Þórodds:
1. Erla Bryndís Þóroddsdóttir húsfreyja, f. 17. maí 1932 í Víðidal, d. 5. september 2023. Maður hennar Stefán Gunnar Stefánsson.
2. Andvana stúlka, f. 24. júní 1942 á Stóra- Gjábakka.
3. Sigríður Þóroddsdóttir húsfreyja, f. 8. september 1943 á Ekru. Maður hennar Ragnar Guðmundsson.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1960.
Sigríður var talsímakona á Símstöðinni, síðar skrifstofumaður hjá Vinnslustöðinni.
Þau Ragnar giftu sig 1963, eignuðust tvö börn.
Þau bjuggu í fyrstu á Huldulandi við Heiðarveg 41, þá í Hásteinsblokkinni, en síðar við Hrauntún.
Sigríður lést 2023.

I. Maður Sigríðar, (13. maí 1963), er Ragnar Guðmundsson rakari, f. 8. desember 1940 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Guðmundur Ragnarsson, f. 19. maí 1920, d. 21. febrúar 1981, og Hólmfríður Magdalena Carlsson, f. 23. júní 1923, d. 4. apríl 2021.
Börn þeirra:
1. Helga Ragnarsdóttir innflytjandi, hárgreiðsludama, f. 9. apríl 1963. Maður hennar Hjálmar Kristmannsson.
2. Viktor Ragnarsson hársnyrtimeistari, rekur Hárstofu Viktors, f. 26. ágúst 1972. Kona hans Valgerður Jóna Jónsdóttir Halldórssonar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.