Sigríður Sighvatsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. apríl 2016 kl. 18:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. apríl 2016 kl. 18:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Sighvatsdóttir frá Vilborgarstöðum, húsfreyja á Vestri-Staðarbæ á Kirkjubæ fæddist 1864 og lést 12. september 1902.
Foreldrar hennar voru Sighvatur Sigurðsson bóndi og formaður á Vilborgarstöðum, f. 10. júlí 1835, d. 8. júlí 1874 og kona hans Björg Árnadóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1830, d. 4. júní 1915.

Sigríður var vinnukona hjá Sigurði Sveinssyni snikkara í Nýborg á níunda áratug 19. aldar og gerði hann henni barn. Var það Júlíana Guðríður Ingveldur Sigurðardóttir, síðar húsfreyja á Búastöðum, f. 19. júlí 1886, d. 28. október 1976.

Sigríður giftist Jóni Eyjólfssyni frá Hlíð undir Eyjafjöllum, bónda á Kirkjubæ, f. 1862. Hún missti hann í sjóinn 20. maí 1901, er julið Sjólyst fórst í Álnum suður af Bjarnarey.
Þau höfðu eignast fjögur börn, misst eitt þeirra á fyrsta ári, en þrjú voru hjá móður sinni á Kirkjubæ 1901, auk Júlíönu:
1. Kristján Loftur Jónsson, f. 13. júlí 1891, d. 2. maí 1981. Hann ólst upp hjá hjónunum í Háagarði, Þorsteini Ólafssyni og Ingibjörgu Hjörleifsdóttur.
2. Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 18. júní 1893, d. 27. mars 1894.
3. Kjartan Jónsson, síðar bókbindari á Búastöðum, f. 3. desember 1896, d. 3. desember 1940. Hann var í Framnesi og á Búastöðum.
4. Sigurður Björgvin Jónsson, f. 28. maí 1899, d. 30. janúar 1914. Hann var niðursetningur í Gvendarhúsi 1910.
5. Jónína Sigríður Jónsdóttir, f. 16. nóvember 1901, d. 6. maí 1922.
6. Barn Sigríðar: Júlíana Guðríður Ingveldur Sigurðardóttir.

Sigríður var með ekkjunni móður sinni 1890. Hún var húsfreyja og ekkja á Kirkjubæ 1901 með 4 börn sín hjá sér.
Hún missti heilsuna og varð að koma börnunum fyrir. Hún lést 1902.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.