Signý Magnúsdóttir (Hlíðarási)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. apríl 2016 kl. 14:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. apríl 2016 kl. 14:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Signý Viktoría Vilhelmína Magnúsdóttir''' frá Hlíðarási, húsfreyja fæddist 10. júní 1910 og lést 11. janúar 1965.<br> Foreldrar hennar voru [[Magnús Guðmundsso...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Signý Viktoría Vilhelmína Magnúsdóttir frá Hlíðarási, húsfreyja fæddist 10. júní 1910 og lést 11. janúar 1965.
Foreldrar hennar voru Magnús Guðmundsson útgerðarmaður í Hlíðarási, f. 1. ágúst 1867, d. 2. ágúst 1949, og kona hans Guðbjörg Magnúsdóttir húsfreyja, f. 30. júní 1872, d. 14. desember 1940.

Signý var með foreldrum sínum í æsku. Hún var til heimilis í Hlíðarási 1930, en dvaldi á Velli í Hvolhreppi. Hún giftist Sigurjóni 1932. Þau bjuggu á Bakkavelli.
Sigurjón lést 1960 og Signý 1965.

Maður Signýjar, (2. janúar 1932), var Sigurjón Þorkell Gunnarsson bóndi á Bakkavelli í Hvolhreppi, f. 30. maí 1904 á Velli þar, d. 9. febrúar 1960.
Börn þeirra:
1. Magnús Gunnar Sigurjónsson bóndi og smiður á Bakkavelli, f. 27. nóvember 1932 á Velli.
2. Guðni Hörður Sigurjónsson trésmiður á Bakkavelli, f. 30. ágúst 1934, d. 19. nóvember 1974.
3. Jónína Guðbjörg Sigurjónsdóttir, f. 1. maí 1949.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.