Sigmundur Ólafsson (Júlíushaab)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigmundur Ólafsson vinnumaður í Nýborg og Júlíushaab fæddist 27. febrúar 1864 á Oddsstöðum og lést 30. júlí 1890 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hans voru Ólafur Ólafsson vinnumaður, f. 28. ágúst 1834 og kona hans Kristín Jónsdóttir vinnukona, f. 18. apríl 1839, d. 22. júní 1906.

Sigmundur fór undir Fjöllin með móður sinni 1864, var niðursetningur í Vatnskoti í Djúpárhreppi 1870, léttadrengur þar 1880.
Hann kom að Nýborg 1884, var þar vinnumaður á því ári og 1885, en í Julíushaab 1886-1888, er hann fór til Utah.
Hann lést 1890.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.