Sigmundur Karlsson (Nikhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. nóvember 2016 kl. 19:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. nóvember 2016 kl. 19:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigmundur Karlsson (Nikhól)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigmundur Karlsson sjómaður, vélstjóri fæddist 23. september 1912 á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka og lést 13. apríl 1994.
Foreldrar hans voru Guðmundur Karl Guðmundsson bóndi og formaður á Gamla-Hrauni, síðar á Stokkseyri, f. 28. maí 1892, d. 10. júlí 1929, og kona hans Sesselja Jónsdóttir húsfreyja, síðar í Þorlákshöfn, f. 27. febrúar 1892, d. 8. september 1977.

Sigmundur var með foreldrum sínum í æsku.
Kann lærði til vélstjóra og stundaði vélstjórn í Eyjum, en var verkamaður í Reykjavík eftir flutning þangað í Gosinu.
Þau Klara bjuggu í fyrstu á Stokkseyri, en fluttust til Eyja um 1936, giftu sig 1942. Þau leigðu víða í Eyjum, bjuggu síðast í Nikhól, eignuðust 11 börn, en misstu eitt barn á fyrsta aldursári.
Við Gos fluttust þau til Reykjavíkur, bjuggu síðast á Kleppsvegi 32.
Klara lést 1993 og Sigmundur 1994, voru bæði grafin í Eyjum.

Kona Sigmundar var Klara Kristjánsdóttir, f. 8. júlí 1917 á Heiðarbrún, d. 23. janúar 1993.
Börn þeirra:
1. Elín Kristín Sigmundsdóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 28. febrúar 1936 á Breiðabólstað, d. 30. desember 2000.
2. Guðmundur Karl Sigmundsson, f. 3. febrúar 1937 á Hásteinsvegi 10, d. 31. maí 1937.
3. Karl Cesar Sigmundsson skósmiður, f. 6. febrúar 1938 á Hásteinsvegi 9.
4. Jóhanna Ester Sigmundsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1939 á Hásteinsvegi 9.
5. Auður Anna (Sigmundsdóttir) Konráðsdóttir, f. 28. desember 1940 á Vesturvegi 19, (Lambhaga). Hún varð kjörbarn Konráðs Guðmundssonar, f. 12. febrúar 1915 og Laufeyjar Sigríðar Karlsdóttur föðursystur sinnar, f. 15. ágúst 1919.
6. Ólafur Már Sigmundsson sjómaður, f. 11. mars 1942 á Hásteinsvegi 19.
7. Svavar Sigmundsson kaupmaður, f. 16. nóvember 1944 í Stafnesi.
8. Heimir (Sigmundsson) Konráðsson rafvirki, f. 26. mars 1946 í Stafnesi. Hann varð kjörbarn Konráðs Guðmundssonar, f. 12. febrúar 1915 og Laufeyjar Sigríðar Karlsdóttur föðursystur sinnar, f. 15. ágúst 1919.
9. Hörður Ársæll Sigmundsson tónlistarmaður, f. 31. desember 1947 í Nikhól, (Hásteinsvegi 38), d. 22. apríl 1966.
10. Kristján Sigmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 20. apríl 1951 í Nikhól.
11. Laufey Sigríður Sigmundsdóttir húsfreyja á Spáni, f. 25. janúar 1956 í Nikhól.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.