Sigmundur Ólafsson (Júlíushaab)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Sigmundur Ólafsson vinnumaður í Nýborg og Júlíushaab fæddist 27. febrúar 1864 á Oddsstöðum og lést 30. júlí 1890 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hans voru Ólafur Ólafsson vinnumaður, f. 28. ágúst 1834 og kona hans Kristín Jónsdóttir vinnukona, f. 18. apríl 1839, d. 22. júní 1906.

Sigmundur fór undir Fjöllin með móður sinni 1864, var niðursetningur í Vatnskoti í Djúpárhreppi 1870, léttadrengur þar 1880.
Hann kom að Nýborg 1884, var þar vinnumaður á því ári og 1885, en í Julíushaab 1886-1888, er hann fór til Utah.

I. Kona Sigmundar, (1. desember 1888), var Sólrún Guðmundsdóttir frá París, f. 11. október 1867 í Elínarhúsi, d. 8. mars 1949 í Taber í Kanada.
Hann lést 1890. Sólrún giftist svo Jóhanni Pétri Jónssyni 1891.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • The Icelanders in Utah. La Nora Allsted.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.