Sigmar Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. ágúst 2012 kl. 08:16 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. ágúst 2012 kl. 08:16 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
F.v. Þórunn Júlía Sveinsdóttir, Guðlaug Erla Sigmarsdóttir, Gísli Matthías Sigmarsson og Sigmar Guðmundsson

Sigmar Guðmundsson frá Miðbæ á Norðfirði fæddist 28. ágúst 1908 og lést 4. júlí 1989.

Eiginkona Sigmars var Þórunn Júlía Sveinsdóttir. Sigmar var kostgangari hjá henni þegar þau kynntust. Þau giftu sig á gamlársdag 1939. Sigmar var þá sjómaður en varð síðar útgerðarmaður. Gerðu þeir Óskar Matt, stjúpsonur hans, út bátana Nönnu VE 300, Leó VE 294 og Leó VE 400. Gekk sú útgerð að mestu leyti vel, sérstaklega eftir að þeir keyptu Leó VE 400 sem var stálbátur, smíðaður fyrir þá í Austur-Þýskalandi. Hann kom nýr til Eyja í desember 1959.

Sigmar og Þórunn eignuðust tvo börn saman, Gísla Matthías Sigmarsson, f. 9. okt. 1937, og Guðlaugu Erlu Sigmarsdóttur, f.11. okt. 1942, d. 11. maí 2005. Auk þess ólu þau upp, Sigmar Þór Sveinbjörnsson, f. 23. mars 1946, til fjórtán ára aldurs, eða þar til Þórunn lést, en hún ól Sigmar Þór upp vegna veikinda móður hans.

Þau Þórunn og Sigmar bjuggu á Byggðarenda til ársins 1954, en þá fluttu þau að Sunnuhvoli við Miðstræti 14 þar sem Þórunn bjó til dauðadags.

Myndir


Heimildir

  • gardur.is