Siggerður Þorvaldsdóttir (Bakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2018 kl. 16:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2018 kl. 16:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Siggerður Þorvaldsdóttir á Siggerður Þorvaldsdóttir (Bakka))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Siggerður Þorvaldsdóttir á Bakka, húsfreyja fæddist 10. desember 1891 á Mel í Eskifirði og lést 17. mars 1929.
Foreldrar hennar voru Þorvaldur Jónsson söðlasmiður í Dölum í Fáskrúðsfirði, f. 18. nóvember 1834, d. 24. apríl 1907, og kona hans Sigurlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 18. júlí 1851, d. 6. maí 1928.

Siggerður var hjá systur sinni á Kolableikseyri í Mjóafirði 1901, hjú í Jóhannshúsi á Eskifirði 1910.
Hún fluttist til Eyja 1919, giftist Ólafi 1920 og eignaðist með honum fimm börn.
Þau bjuggu á Bólstað 1919-1922, voru komin á Bakka 1923 og bjuggu þar síðan.
Siggerður lést 1929.

I. Maður hennar, (31, maí 1919), var Ólafur Guðmundsson sjómaður, skipstjóri, gúmílímari, f. 2. júlí 1892 á Krossi í A-Landeyjum, d. 8. október 1953.
Börn þeirra:
1. Oddur Magnús Ólafsson sjómaður, verkamaður í Reykjavík, f. 4. janúar 1920 á Bólstað, d. 15. júní 2009.
2. Þorvaldur Ólafsson frá Búastöðum, vélstjóri, vélvirkjameistari, verslunarmaður, heildsali í Reykjavík, f. 5. júní 1921 á Bólstað, d. 27. febrúar 2009.
3. Sigurður Ólafsson vélvirki, síðast á Seyðisfirði, f. 14. apríl 1923 á Bakka, d. 27. október 1992.
4. Fífa Guðmunda Ólafsdóttir húsfreyja, f. 16. nóvember 1925 á Bakka, d. 20. júlí 2009.
5. Guðríður Ólafsdóttir, f. 15. júlí 1927 á Bakka. Hún var fóstruð í Höfðahúsi hjá Jóhanni Björnssyni og Ingibjörgu Þórarinsdóttur. Hún lést 20. maí 1931.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.